Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 37

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 37
IÐUNN Askja í Dyngjufjöllum. 207 skarð er venjulega erfitt yfirferðar og miklar snjófannir í því á sumrin; þar er líka oft þoka, þó að þokulaust sé umhverfis fjöllin. Úr norðvesturhorni Oskju er erfitt að koma hestum yfir dalverpið vegna hraunsins og skilja ferðamenn þá oft þar eftir. Þriðja leiðin hefir eigi verið farin fyrri en nú síðustu missirin; hún er suður um Dyngjufjalladal og austur með fjöllunum að sunnan. Þessi leið er greiðfærust en lengst, og er gott að fara hana á hestum alveg inn að suðvesturhorni Öskjuvatns. Þá er komið að sunnan og vestan í Oskju eftir svonefndu Trölladpngjuskarði (stefna skarðsins úr Oskju er á Trölladyngju). — Suður úr Oskju eru ennfremur tvö skörð, er kallast Suðurskörð, á milli Thoroddsenstinds að austan og Wattsfells að vest- an (Englendingurinn William Watts kom fyrstur í suð- urhluta Öskju 1875, og er fellið við hann kent). Beinust leið úr bygð í Öskju, um Jónsskarð, er 10 klst. ferð, og um hin skörðin, eða að minsta kosti syðstu leiðina, þarf c. 3 klst. í viðbót, en hún er jafn- an greiðust og skemtilegust. Við norðvesturhorn Dyngju- fjalla er búinn fullur þriðjungur vegalengdar úr Svartár- koti. Þar eru síðustu grastoddar á Öskjuleiðum og þurfa ferðamenn því að flyíja með sér hey handa hesfum sínum. Öskjubotn er allur storkinn ógreiðfæru hrauni, gömlu og nýju. Þar eru óteljandi eldvörp, og í fjöllunum um- hverfis eru eldborgir og hraunskriður frá ýmsum tímum hátt uppi í móbergshlíðunum. — í suðausturhluta Öskju hefir botninn sokkið niður og myndast geysidjúpt jarðfall, sem er c. 12—15ferkm. að flatarmáli og altað 300 m. djúpt austast, þar sem það er dýpst, telur Þ. Th., því að jarðfall þetta var nálega vatnslaust fyrst eftir eldgosið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.