Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 54

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 54
224 Foltsandur. IÐUNN Eg fæ ekki séð, að neitt sé varhugavert við að nota þetta orð um vansælustaðinn, eða vansæluásíandið, hvort sem menn nú heldur vilja. Islenzkan leggur þar til orð, sem á nákvæmlega við hugmyndir nútíðarmanna um þetta. Það er myndað af orðinu hel, sem merkir dauðann og bústaði framliðinna, auk þess sem það er nafnið á gyðju dauðans, og af orðinu víti, sem merkir refsing. Orðið «helvíti« merkir þá refsing eftir dauðann. Það merkir ekkert annað, eftir sínum íslenzka uppruna. I því er til dæmis að taka, ekki fólgin nokkur bending um, hve langvinn sú refsing sé, því síður, að hún sé ævarandi. Mér finst ekki, að eg ætti að þurfa að gera mikla grein hér fyrir þeirri sannfæring minni, að breytni manna og hugarfar í þessum heimi hafi afleiðingar, þegar komið er inn í annan heim, þar á meðal að van- sæluástand — »eitthvert helvíti« — sé óumflýjanlegt þeim mönnum, sem eru sérstaklega illa hæfir fyrir þau lífs- skilyrði, er þar bíða mannanna. Jesús frá Nazaret talar um »myrkrið fyrir utan«, og mér kemur ekki til hugar, að það tal hafi verið neitt fleipur. Það er sannfæring mín, að þetta vansæluástand vondra manna haldi áfram, þar til er þeim hefir auðnast að sjá að sér, og eru komnir í samræmi við þau lífsskilyrði, sem þeir eiga við að búa í hinum nýja heimi. Þetta hefir verið sannfæring mín um mörg ár, alt af síðan er eg komst á þá skoðun, að árangur sálarrann- sóknanna væri mikilvægur. Hvort sem hún er rétt eða röng, þá lít eg svo á, að hún sé reist á rökum, sem að minsta kosti stappi nærri sönnunum. Og eg hefi aldrei farið dult með hana. Eg hefi meðal annars, svo að eg biðji menn ekki að leita lengra, vikið að henni í báð-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.