Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 57

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 57
IÐUNN Foksandur. 227 inþorra manna, að öll afskifti framliðinna mannaafþess- um heimi séu jarðneskum mönnum fjandsamleg og jafn- vel eitthvað djöfullegt við þau. Vmsar hinar mögnuðu og hrottalegu draugasögur vorar eru ljóst og órækt dæmi um þetta hér á landi. Og hjátrúin hefir tekið á sig þessa mynd um allan heim. Þetta er í mínum aug- um með öllu fráleitt. Þessi hugsun varð að söguefni hjá mér í Móra. Þeim lesendum þessa tímarits, sem ekki hafa lesið þá sögu, til frekari skilningsauka, skal eg leyfa mér að tilfæra hér nokkurar línur úr sögunni. „Þarna hafði hann (a: síra Ingólfur) talað við einn af bræðrum sínum, einn af fáráðustu smælingjum alheimsins, sem farið hafði inn í annan heim og ekki haft nein skilyrði til þess að átta sig á neinu þar. Þessi vesala sál hafði leitað til jarðarinnar aftur, af því að henni fanst hún hvergi geta verið, og svo mögnuð hafði hjáirú og vitleysa mannanna verið, að þeir höfðu ekkert að bjóða hinum mædda vegfaranda annað en hatursþrungna hræðslu. Og tilveran hafði orðið honum að öræfum, og einn hafði hann orðið að ráfa í villunni í sandbylnum frá æstum óvildar-hugrenningum — hver veit hvað lengi!" Eg skýt því óhræddur undir dóm óhlutdrægra og skynsamra manna, hve nánar samstæður þeim finnist þessir tveir menn: höfðinginn og ofbeldismaðurinn, sem látinn er fyrir eitthvað 9 öldum, og nútíðarfáráðlingurinn, sem leitar úr öðrum heimi á náðir mannanna! Mér finst, að þessum smælingja hefði átt að taka vingjarnlega, ef hann hefði verið til. Eg skil ekki, að af því leiði það óhjákvæmilega, að mér sé óheimilt að láta afdráttarlaust uppi skoðun mína á atferli fornaldarhöfðingjans. III. Mér virðist þá, að eg muni ekki þurfa að fjölyrða frekara um V/íga-Styr og »Móra« — að minsta kosti

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.