Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 60
230 Foksandur. IÐUNN Eg hefi þá svarað aðalatriðunum í þessari síðustu rit- gjörð S. N. um mig. Eg hirði ekki um að lengja þessar umræður — þangað til nýjar árásir koma. Um hin miklu vandamál mannanna, sem við S. N. höfum deilt um, ætla eg ekki að rita nú. Eg hefi reynt að gera grein fyrir skoðunum mínum um þau svo skilmerkilega, sem eg hefi haft vit á, og ýmislegt, sem uppi hefir verið látið við mig, bæði munnlega og bréflega, virðist benda á það, að alment hafi menn skilið það og þótt nokkurs um það vert. Svo að eg hefi ekki ástæðu til að kvarta undan þessum umræðum. En ef til vill er ekki úr vegi að lokum að minnast á það, sem mér virðist þungamiðjan í þessari deilu. Vms- um kann að þykja örðugt að finna hana, af því að svo margt hefir borið á góma. Eg hefi verið — af veikum mætti auðvitað, og ófull- kominni list — í sumum ritum mínum að leitast við að halda að lesendum mínum nokkurum af æðstu hugsjón- um mannkynsins. Eg hefi fengið þær frá miklu spá- mönnunum og sérstaklega frá einum, sem eg trúi að sé oss öllum óendanlega miklu æðri. S. N. telur það rangt — hræsni og óheilindi — að vera að halda þeim hug- sjónum á lofti, af því að mennirnir breyti ekki eftir þeim. I síðustu ritgjörð sinni líkir hann þeim við þrota- bú. Svo að eg haldi mér við það, sem hefir sérstaklega orðið að efni í þessum undangengnu ritgjörðum mínum, ær þá fyrirgefningarskyldan, mannúðarhugsjónin, ábyrgð einstaklinganna og trúin á það, að æðsta vald í alheim- inum sé gott, ekki annað en þrotabús-reytur? Er ekki réttara að tala gætilega? Ef fyrirgefningarskyldan á sín takmörk, eins og S. N. leggur svo mikla áherzlu á, þá á oflátungsbragurinn áreiðanlega að eiga sín takmörk líka. Getum vér hugsað oss, að nokkuð væri við það unnið

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.