Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 64

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 64
234 Mannsbarn. IÐUNN Mannsbarn fæddist. Ko-ngæ! Ko-ngæ! Bim-bam! Tílí-lílí-bom! Brrr-akk! Vzzz! Tra-ta-ta-ta! Krrakkk! Þess vegna? Nei: fyrir föðurlandið ólgar orusta. Vorir unnu — þess vegna! Ekki kveðjuhljómur, ekki heiðursskof! Held- ur sigurhljómur, drápsskot! Húrra! Mannsbarn er nakið. Rennir augunum upp á við. Kjallaraherbergi. Myrkur, raki, eymd. Móðir kveinar af sársauka. Faðir berst fjærri — við mannbræður. Mannsbarn er baðað í tárum. Baksýn: Alheimsblóðbrullaup. Brjálæði, vitfirring. Menn eru að slátra mönnum. Með vélum, með vísindum. Kúlnasöngur — vöggusöngur móður. Allsherjar taugabruni. Faðir var stimplaður. Kom aftur með eyðilagða heilsu. Oryrki. Fyrstu ár: eymd, eymd, eymd. Skriðið á gólfi. Um- hirðulaust. Stunur, kveinstafir. Móðir vinnur stöðugt. Faðir reikar frá verksmiðju til verksmiðju. Fjár- og brauðskortur. Barnsalda, paradís dagdrauma. O, mikli herra! Garður, stræti. Mannsbarn — berfætt, tötralegt. Aldursfélagar: smá- borgarabörn. \JeI búin. Södd, bústin,' blómleg. Hann — hungraður, beinaber, blóðlaus. Mannsbarn vill líka leika sér. En — á honum hafa menn óbeit: tötralúði, götustrákur. Hann er barinn, skammaður. Æ-æ-æ! Djöfuls betlari! Hvað vilt þú? Farðu burt! Flæmið' hann burt með grjóti! Fyrirlitlegi lúsablesi!

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.