Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 74

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 74
244 Mannsbarn. IÐUNN Sjóleysi. Mannsbarn lætur fiðlu kveina. Fátæklegt þakherbergi. Kuldi, eymd, hungur. Niðri — þrælahúsbændur Mammons. Niðri — borgaralegar alls- nægtir. Hryggur mannsbarns bognaður. Strengirnir kveina. Loftsveiflur. Blóðbrim. Heilinn þvingast. Hjarta við sprengingu. Holdvefir hunguræpa í brauð. Sál — eftir henni. Strengirnir hrökkva. Ég vil lifa! Vil elska! Herbergisloftið yfirfallandi. Mannsbarn kengbognar. Reynir að rétta úr sér. Réttist hanslíki ? Strengir gráta, ský tárast. Dísa, kæra, gyðjan mín! Ekki get ég lifað án þín. Aðeins einu sinni að elska þig! Aðeins einu sinni að kyssa, faðma! Aðeins einu sinni njóta Ástar-Edens! Dísa! Elskan! . . . Ha-hæ! Draugur fortíðar, auðvalds. Sorti, heilsuspell. Gamalt! Gamalt martreður, mer! Fortíð bindur hendurnar, fætur, líkama, heila! Ranglæti! Auðvald þrælkaði, öryrkjaði! Burt fortíð! Burt gamalt! Burt ranglæti! Burt auðvald! Lifi nýtt! Lifi framtíð!

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.