Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 75
IÐUNN Mannsbarn. 245 Mannsbarn einbeitir kröftunum. Ræðst á móti auðvaldinu. . Stígur fyrstu spor til móts við framtíð. Dísa! Dísa! Eg verð að sætta mig við að sjá af þér. Dísa hágrætur. Sálarhvirfilbylur í mannsbarni. Heljarsteinteningar. Kóngulóuvefur stræta. Mannlegt maurabú. Mannsbarn skjögrar á malbiki gangstétta. Auðvaldsbrúðuleikhús. Menn = leikbrúður. Leiktjöld — bankar, kauphallir, vöruhús. Bruna bifreiðar, spor- vagnar, almenningsvagnar. Auðvald kippir í þræðina. Himinrák. Sólskinsblettur. Rafmagnsmánar. Oflýstir salir, leikkrár, girðingar. Eyr- un á mannsbarni fyllir jazzglaumur. Augu — inni Bakkusarmusteris. Umhverfis borðin ýstrubelgir. Hringur svínhausa beggja kynja. I kjöftunum er — gull. Um fingurna — Ieiftursteinar, gimsteinar. Fóður, ha-hæ! guðafæða matreiðslusnildar. Matreiðslusnild mannsbarns — hungur! Geltsmýgur garnirnar með tómleik. Hann fitnaði — fyrirgefið! — horaðist af æfilöngu brauðleysi. Svo er! Svo er! Aftur! Aftur! Mannsbarni gremst. Stjórnleysingjar, sprengikúla (ekki sælgætiskúla!)! Rán- liðar, þér etið brauð vort! Ræningjar, réttarglæpamenn, blóðsugur mannkyns! Þungaðir bitvargar samfélags! Þér drekkið blóð vort! Lifi Iífið! Lifi vín og konur!

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.