Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Síða 81
JÐUNN
Rúm og tími.
251
þ. á., að þeir sáust með berum augum. Einn af þeim
hélst í 6 daga og huldi ^too af hálfhveli sólar.
Landskjálftar. Óvenjumiklir landskjálftar hafa farið
um hnöttinn síðustu ár, og mikil umbrot hafa orðið í
iðrum jarðar. — Vísindamaður í Japan, sem T. Terada
heitir, hefir þózt finna samband nokkurt með sólflekkj-
um og Iandskjálftum á ýmsum stöðum í Japan og
Jamaica. Virðist honum fylgjast að á sumum stöðum:
lágmark landskjálfta og lítill munur sólflekkja á norður-
og suðurhveli sólar.
Þetta má stytta og orða'svo:
Þegar N -j- S er mjög lítið, þá eru fátíðir land-
skjálftar á ýmsum stöðum; en á öðrum stöðum er þó
hámark þeirra er svo vill til. Sömuleiðis finst samband
millum N og S og loftþunga og hitastigs í gufuhvolfi
jarðar. Loftþungi og landskjálfti hlýða líkum lögum, en
hitastig lýtur flóknari lögmálum. Eitt er það, að há-
mark hita verður þegar (N + S) (N -r- S) hefir mjög
mikið eða mjög lítið gildi, en lágmark við miðlungs-
gildi. — Stærðartákn þetta er alþekt í tölvísi og nefnist
samtala sinnum mismunur.
Athuganir þessar vekja athygli mikla, því að eigi
þekkja menn neitt til hlítar upptök landskjálfta né eld-
gosa, og eigi eru menn heldur á eitt sáttir um upptök
sveipa í lofthafi jarðar. Margir telja þó vafasamt, að
náttúruviðburðir þessir á jörðu vorri séu háðir flekkjum
sólar og eigna tilviljun einni, ef svo virðist vera.
Vígahnöttur mikill flaug yfir Suðurengland 25. febr.
sl. Fjöldi manna veitti honum athygli og lýsti honunu
Telst mönnum svo til af lýsingum þeim, að hann hafi
flogið í 100—40 km. hæð, og virtist mönnum hann, undir