Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Page 5

Kirkjuritið - 01.07.1936, Page 5
Kirkjuritið. Dr. Jón biskup Helgason. 259 með þakklæti á þessum tímamótum í æfi lians. Læri- sveinar hans minnast ágæts kennara, skemtilegs og fjör- mikils, öruggs talsmanns samvizkufrelsis og víðsýnis í trúmálum, og eldra safnaðarfólk hér í Reykjavik pré- dikunarstarfs af eldmóði og krafti á 2. áratug'. Og allir hljóta að viðurkenna frábæra iðjusemi og dugnað bisk- upsins og að honum kippi um hvorttveggja í kynið til afa síns, séra Tómasar Sæmundssonar. Þegar biskup tók við síðasta embætti sínu, dáðist hann mjög að því, hve alt hefði verið í mikilli röð og' reglu hjá fyrirrennara sínum, Þórhalli hiskupi. En hið sama segja þeir um starf hans sjálfs, sem bezt þekkja til Hann hefir vísiterað alt landið og safnað fádæma fróð- leik um kirkjur og kirkjueignir, enda er óvíst, að nokk- ur núlifandi manna standi honum framar að þekkingu á sögu þjóðarinnar. Á yfirreiðum sínum hefir hann einn- ig unnið það verk, sem enginn biskup hér á landi liefir orðið til á undan honum. Hann liefir gjört uppdrátt af öllum kirkjum landsins, og' er það hið merkilegasla safn. Ýmsir prestar hafa liaft hug á því, að þær myndir yrðu gefnar út á þessu ári í heiðursskyni við biskup, en þess er því miður enginn kostur sökum þess, hve út- gáfan myndi verða dýr. Hefir ritstjórn „Kirkjuritsins" því farið þess á leit við biskupinn, að ritið mætti birta smám saman ýmsar af myndum hans, og fengið góðar undirtektir. Stjórn Prestafélags íslands gjörði hiskupinn að heið- ursfélaga þess á sjötugsafmæli lians, og' hafði um það þessi orð: „Stjórn Prestafélags íslands sendir yður herra biskup dr. theol. Jón Helgason hugheilar árnaðaróskir sínar á sjötugsafmæli yðar. Jafnframt minnist hún þess, að þér áttuð frumkvæði að stofnun félagsins, og þakkar vel- vild yðar og störf í þágu þess frá upphafi til þessa dags. Hefir félagsstjórnin þvi á fundi sínum þann 16. þ. m. kjörið yður heiðursfélaga Prestafélags íslands. Um leið 17*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.