Kirkjuritið - 01.07.1936, Blaðsíða 6
260
. Embætti og utanfarir.
KirkjuritiÖ.
og félagsstjórnin leyfir sér að tilkynna yður þetta, vill
liún láta í ljósi þá innilegu ósk, að yðar megi enn lengi
við njóta og biður Guð að blessa ófarin æfiár yðar“.
Undir þá ósk vill „Kirkjuritið“ taka. Heill og gifta
fvlgi biskupi að hverju starfi.
Ásnmndur Guðmundsson.
EMBÆTTI OG UTANFARIR.
Embœttispróf í guðfræði tóku þessir menn um miðjan júní-
mánuð, og hlutu einkunnir, sem hér segir:
Finnbogi Kristjánsson . ... II. eink. betri 92 stig
Helgi Sveinsson I. 118% —
Hólmgrímur Jósefsson . ... II. — — 92 —
Jóhann Hannesson I. 137 —
Marinó Kristinsson I. — 106% —
Pjetur T. Oddsson I. — 106 —
Þorsteinn Björnsson I. — 110 —
Fjórir af þeim munu þegar ganga út í prestsskap. Helgi Sveinsson
mun verða settur prestur að Hálsi í Fnjóskadal, Hólmgrímur Jós-
cfsson að Skeggjastöðum, Marinó Kristinsson er eini umsækjand-
inn um Vallanes og Þorsteinn Björnsson er ráðinn aðstoðarprest-
ur að Árnesi.
Séra Jón Þorvarðsson og cand. theol. Gísli Brynjólfsson komu
heim í vor úr utauför sinni. Mun „Kirkjuritið“ flytja i haust
greinar eftir báða um mál, sem þeir kyntu sér í utanförinni.
Séra Benjamín Kristjánsson dvelur í London um þessar mundir
við guðfræðileg vísindastörf. Síðar mun hann heimsækja liáskóla-
bæina Oxford og Cambridge.
Utanfararstyrkur kandidata úr Sáttmálasjóði hefir á þessu ári
verið veittur cand. theol. Jóhanni Jóhannssyni, kennara við gagn-
fræðaskólann á Siglufirði.
Lausn frá prestsskap hafa þeir fengið frá siðustu fardögum séra
Ingvar Nikulásson á Skeggjastöðum (vígður 1891) og séra Ás-
mundur Gíslason prófastur á Hálsi (vígður 1895).
Séra Friðrik A. Friðriksson hefir verið settur prófastur í Suður-
Þingeyjarprófastsdæmi.