Kirkjuritið - 01.07.1936, Blaðsíða 16
270
Kirkjufundur.
KirkjuritiÖ.
efnum, að lwarvetna þar sé tekið tillit til fólksfjölgunar, er um
skipun prestakalla rœðir, og prestum fjölgað i sem réttustu
hlutfalli við hana. Með öðrum orðum, hér förum við okkar eigin
götu meðal kristinna menningarþjóða — götuna aftur á bak.
En vill nú fólkið þetta? Ég held það hafi aldrei viljað það,
en það var hreint ekki um það spurt og aldrei almenl — og enn nú
átti ekki að spyrja það; það skal nú opinberað, þvi að frá byrj-
un var þannig farið með prestakallamálið á Alþingi, frá því er
því var skilað af milliþinganefnd, að ekki fékst á því nokkur á-
heyrn, að það yrði borið að opinberum liætti undir þjóðina.
Mátti þó gera það á mjög einfaldan liátt, svo sem með því að
leita umsagnar sóknarnefnda og safnaða, áður enformað yrðiaðaf-
greiða málið til hlítar. Flutningsmenn og forsvarsmenn málsins á
Alþingi töldu slíkt firru eina, og héldu fram réttmæti málsins að
öllum aðitjmn óheyrðum og óspurðum; töldu það fullnóg, að at-
kvæðamagn á þingfundi skæri úr, og yrðu þá allir aðrir við að
hlíta.
.... Hétt til gamans skal ég segja frá því, að sá, er mest beitti sér
móti í ræðu, tók það fyrir við allra síðustu atrennu málsins í
n.d., er svo virtist sem verið væri að klappa steininn, að beina
því til hlutaðeigenda (þ. e. flutningsmanna), hvort þeir vildu þá
ekki hverfa að því, að fá opinberar upplýsingar frá hverjum
fulltrúa i þingi, þó að ekki væri lengra leitað, um vilja fólksins
i hans héraði, og tillögur hans hér að lútandi, skriflegar og
undir ábgrgð gagnvart lcjördæmi og kjósendum! Varð þá fátt
um tilsvör, en heldur koin flökt á liðið, því að síðan fóru ýmsir
að lýsa yfir því, að þótt þeir greiddu frv. „atkvæði til 3. umr.‘“,
áskildu þeir sér rétt til þess að koma fram með breytingartill. við
það að síðustu, viðkomandi sínu héraði, áður en það yrði pínt
út úr deildinni
.... En eins og allir munu vita, komst þetta lítt rædda mál ekki
alla þessa leið. Aðalatriði þess var felt við atkvæðagreiðslu að
lokinni 2. umr. með framkominni breytingartillögu frá minni
hl. þingnefndar í málinu (þm. Ak. og A.-H.), með 13:11 atkv.
(nokkrir þingmenn sátu lijá). Breytingartill. þessi var þess efnis,
að í stað þess að fækka prestum um 40 eða meir, mætti mest
fækka prestaköllum við samsteypu um nál. 10, og var það sýnu
nær sanni, ef nokkuð átti að gera í þá átt, og fyrir því studdu
andstæðingar frv. breytingartillöguna, og hepnaðist með því að
bjarga málinu, því að síðan dagaði það alveg uppi. Var nú flutn-
ingsmönnum að mestu runninn móðurinn, og ýmsir vildu enn
breyta til og tryggja sín liéruð betur (þingm. virtust nú vakn-
aðir), svo að nokkurn veginn er víst, að eigi hefði málið heldur