Kirkjuritið - 01.07.1936, Blaðsíða 36
290
Kirkjufundur.
Kirkjuritið.
í þessum oröum t'elst „tilskipun" konungsins Krists, varðandi
skyldu kirkjunnar gagnvart börnunum.
En á hvern veg má kirkjan sem bezt rækja þessa helgu skyldu.
Ég ætla mér ekki þá dul, að svara tæmandi þeirri spurningu.
En mig langar lil að benda á nokkurar leiðir, sem kirkjan getur
farið til þess að vinna sitt helga skylduverk gagnvart börnunum.
1. Vil ég þá fyrst minna á lieimilin. Þar fær barnið sína fyrstu
aðhlynningu — og áhrif. Til heimilanna nær kirkjan með liinu
boðaða orði og sálgæzlustarfi sínu. Séu áhrifin á heimilinu
blessunarrík, njóta þau börn, er þar alast upp, góðs af. Og
áreiðanlega eru þeir fleiri með þjóð vorri en tölum verði talið,
sem eins og þjóðskáldið geta sagt um móður sina og föður:
,,Enginn kendi mér eins og þú liið eilífa og stóra, kraft og trú,
né gaf mér svo guðlegar myndir“. Og þeir eru og verða því
fleiri, er það geta sagt, sem áhrif kirkjunnar til lifand krist-
indóms eru kröftugri.
2. Þá vil ég nefna bárnaskólana. Þangað koma börnin á ungum
aklri, 8—10 ára. Á þeim árum er barnið næmt fyrir áhrifum og
því mikilsvert, að áhrifin miði að glæðing trúarlífs og siðleg-
um þroska. 1 kristnu landi virðist það ekki ósanngjörn krafa,
að kristindómsfræðslunni sé skipað á hinn æðri bekk, eða öllu
heldur að hún skipi æðsta sætið meðal námsgreinanna, en
sé ekki gjörð að liornreku, svo sem nú er títt við helzt til
marga barnaskóla. Og sanngjarnt er, að þeir einir fáist við
þá fræðslu, sem liafa unun af henni og geta miðlað börnunum
af eigin trúarfjársjóði sínum. Að þessu verður þá líka kirkjan
að vinna, án þess að þreytast, þó við mótspyrnu rangsnúins
hugsunarháttar sé að etja.
3. Sunnudagaskólum og barnaguðsþjónustum ætti að vera unt að
halda uppi í bæjum, kauptúnum og þorpum og þar ann-
arsstaðar, sem nokkuð er þéttbýlt. I því efni veltur mest á,
að til séu starffúsir verkamenn á þeim starfsakri.
4. Hæli fyrir vangæf börn. Vísi til slíks hælis var komið á fót
liér í Reykjavík síðastliðið haust og reyndist ineð ágætum.
Sú byrjun ætti að hvetja til stórum aultins starfs á því sviði.
5. Fávitahæli. Vonandi er, að ekki líði lengi úr þessu, að því
máli verði komið á framkvæmda rekspöl, svo rækilega sem
það mál liefir verið rætt og athugað.
0. Barnaspítala er orðin aðkallandi þörf, ekki sízt í Reykjavík.
Þó ég viti, að á margt fleira mætti minnast í því máli, sem hér
er um. að ræða, ætla ég að láta liér staðar numið. Aðeins vil ég
að síðustu taka þetta fram. Einhver tryggasta leiðin til vaxandi