Kirkjuritið - 01.07.1936, Blaðsíða 54
KirkjuritiS.
AÐALFUNDUR
PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS.
, Á sunnudag, 28. júní, jjegar leið að nóni, fór stór
UrUOSþjonusta bill meS fundarmenn frá húsi K. F. U. M. i
*. ^lnSva a- Reytjavik á stað til Þingvalla. Skömmu eftir jjað
lr ^u‘ er til Þihgvalla kom, var gengið lil kirkju. Fylt-
ist hún fljótt af fólki, svo að margir urðu að standa. Sóknarprest-
urinn séra Hálfdan Helgason var fyrir altari á undan prédikun,
en séra Gísli Skúlason steig í stólinn og flutti fagra ræðu út af
guðspjalli dagsins, sögunni um týnda soninn. Síðan fór liann
fyrir altari og tók til altaris.
„ ., . ,. „ Formaður félagsins, Sigurður prófessor Sívert-
ei ín 1 or- sen vígslubiskup, gat ekki sótt fundinn sökum
veikinda. Var þess mjög saknað, því að hann
hefir jafnan á undanförnum árum átt veigamesta þáttinn í fund-
arstörfunum og sett sinn svip á þau. Ákváðu fundarmenn þegar
að senda honum kveðju sina í símskeyti:
„Við setningu aðalfundar minnist Prestafélag íslands formanns
síns og sendir honum blessunaróskir, vinakveðjur og jjakkir fyrir
ágætustu störf á liðnum árum‘‘.
Seinna barst fundinum aftur skeyti frá honum:
„Þakka skeytið, samvinnu liðinna ára og bróðurhug. Óska, að
Prestafélagið eflist til vaxandi áhrifa. Sendi fundarmönnum beztu
kveðjur“.
„ , ,, F'undurinn var heldur í fásóttara lagi. Munu
un arso n. mi]d] kirkjufundahöld undanfarið ef til vill hafa
valdið nokkuru um það. Á fundinum voru auk biskups landsins
20 prestvígðir menn og 3 guðfræðiskandídatar. Ennfremur komu
á hann tvær prestskonur.
Á sunnudagskvöldið kl. 8.30 var gengið til dag-
skrár. Prófessor Ásmundur Guðmundsson gaf
fyrir hönd Prestafélagsstjórnarinnar skýrslu um
störf hennar á liðnu ári. Félagið liefir ekki gefið út annað rit en
„Kirkjuritið" að þessu sinni, enda kostar útgáfa þess mikið fé.
En kaupendur þess eru miklu fleiri en að „Prestafélagsritinu“
áður, og kirkjunni hefir verið góður styrkur að því á þessuin
Skýrsla
stjórnarinnar.