Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Qupperneq 18

Kirkjuritið - 01.07.1936, Qupperneq 18
272 Kirkjufundur. KirkjuritiÖ. á sviöi líknarmálanna, enda á hún venjulega á að skipa mörgum starfsmönnum með sérmentun, oft víðtækri og góðri. í Mótmæl- endakirkjunum hefir hins vegar verið meiri þörf leikmannastarf- semi, enda hefir hún aukist mjög á seinni árum, einkum á síð- ustu öld, og um leið öll þátttaka leikmanna í hinni kirkjulegu- starfsemi og hlutdeild i stjórn og meðferð þeirra mála. Er þetta líka rélt stefna og eðlileg, því að kirkjan er alment samfélag allra, sem í kirkjunni eru, og eru starfsmenn kirkjunnar, prestarnir, ekki nema lítið brot og ekki annað en þjónar hins mikla meiri hluta, enda þótt þeir vegna sérmentunar sinnar og embættis hafi að vísu greinilega sérstöðu. Og með því að skilningur á þessu hefir farið vaxandi og þar eð mjög verulegar breytingar hafa orðið í lífi þjóðanna, mentun og menningu, félagslífi og við- liorfum öllum, hefir kirkjan tekið upp ýmiskonar nýjar starfsað- ferðir og ný starfssvið, og hefir þá orðið nauðsyn á meira samstarfi presta og leikmanna og á beinni þátttöku leikmanna í hinu kirkju- lega starfi. En þá mætti spyrja: Hvað er kristin leikmannastarf- semi, og hver eru þau störf, sem leikmenn hafa einkum fengist við og helgað krafta sína? Venjulega er það talin leikmannastarfsemi, sem framkvæmd er af öðruin en þjónum kirkjunnar, sem feng- ið hafa sérmentun til þess starfs og hafa verið til þess vigðir. En eins og gefur að skilja, eru oft, þó um leikmannastarfsemi sé að ræða, allmikil afskifti kirkjunnar manna af þeim, enda á svo að vera. Hér á að vera um samstarf að ræða. En þeir starfs- þættir, sem leikmenn hafa einkum unnið að, eru þessir: 1. Þálttaka og stjórn safnaðarmála, öflun fjár og meðferð þess, yfir liöfuð alt, sem lítur að rekstri safnaðarstarfseminnar. Og svo á víðtækara sviði, þátttaka í stjórn hinna kirkjulegu mála, að þvi er, snertir kirkjuna sem heild. 2. Allskonar mannúðar, líknar og fátækrastarfsemi, þar sem kirkjan vill koma fram sem hinn miskunnsami Samverji í erf- iðleikum mannanna,' fátækt, sjúkdómum og margskonar böli 3. Fræðslustarfsemi í hinni kristilegu trú og boðun fagnaðarer- indisins meðal mannanna. Ég hefi nefnt hér fjármálin, en þau eru allaf og alstaðar veiga- mikill þáttur í allri safnaðarstarfsemi og kirkjulegu starfi. Og hvort sem kirkjan nýtur fjárhagslegs stuðnings frá ríkinu eða á sjálf eignir, eins og í Englandi, þá verður livergi hjá því komist, að afla fjár með gjöfum og frjálsum samskotum og á ýmsan ann- an hátt, kemur þá óhjákvæmilega til kasta leikmanna að annast og stjórna þessari hlið fjármálanna. Vakti það sérstaka athygli mína í Englandi, hversu leikmenn þar liöfðu ríka tilfinningu fyrir fjárþörf safnaðanna og kirkjunnar, og hversu menn þar lögðu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.