Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Page 21

Kirkjuritið - 01.07.1936, Page 21
Kirkjuritið. Kirkjufundur. 275 við söfnuðina, félög, seni ég heyrði alstaðar getið að góðu einu. Ég tala hér um kristileg skátafélög, því að þau eru tvennskonar, annarsvegar þau, sem láta kristindóminn afskiftalausan, hinsvegar þau, er hafa kristilegt uppeldi sem meginatriði og stefnuskrár- atriði. í Englandi eru svo æskulýðsfélög, svo sem t. d. Crusaders, Campaigners, Christian Endeavour o. fl., sem öll starfa í 2—3 aldursflokkum alt til tvítugs eða þrítugs aldurs. í stað þessara félaga koma hinsvegar á Norðurlöndum K. F. U. M. og K. Er það einkennilegt, að þótt þessi félagsskapur sé upprunninn í Englandi, þá er hans þar að litlu getið nú. Sumstaðar eru auk þessa bindindisfélög, sem þó starfa utan Góðtemplara reglunnar. Þetta eru hin helztu almennu félög fyrir börn og unglinga, og er mjög algengt, að í borgunum sé starfandi eitt eða fleiri slík æskulýðsfélög, auk sunnudagaskólanna. Fyrir fullorðna eru svo Menighedssamfund, t. d. mæðrafélög og svo nefndir og klúbbar, sem starfa í sérstöku augnamiði, sauma og útbúa föt til fátækra heimila, vinna að skreytingu og fegrun kirkjunnar, útbúa hluti, sem síðan eru seldir til ágóða safnaðarstarfseminni. í Sviþjóð er t. d. mjög algengt, að konur í sveitum útbúa ýmsa handunna muni, í stíl hins forna og merkilega sænska heimilisiðnaðar, sem síðan eru seldir í borgum og er eftir þeim sótt, svo mjög sem Svíar heiðra og hlúa að þessari skemtilegu og þjóðlegu iðn. Ein starfsemi er enn ónefnd, sem mjög víða tíðkast og sumstaðar með ágætum árangri, en það eru bibliulestrarsamkomur. Ræðu- maðurinn tekur þá ákveðinn texta til útskýringar, og er ræða hans ekki predikun, heldur fremur biblíuskýring og fræðsla um þau trúarlegu viðfangsefni og vandamál, sem textinn gefur tilefni til. Getur þetta verið mjög nauðsynlegt, svo oft sem menn þrá að fá útskýringu og fræðsiu, sem naumast verður mikið við kom- ið i venjulegum stólræðum. Ég hefi nefnt hér ýmiskonar félaga og safnaðarstarfsemi. Og gefur þá að skilja, að til þess að halda slíkri starfsemi uppi, þarf ekki litla aðstoð leikmanna. Þvi að enda þótt prestar safnaðanna hafi yfirstjórn og eftirlit allrar slíkrar starfsemi, þá gefur að skilja, að þeir hafa ekki tíma til að lielga þessu nema litinn hluta tíma síns. Hljóta því stjórnendur félag- anna og þeir, sem þar eru aðalstarfsmenn, að vera leikmenn. Ég kyntist allvel einum söfnuði í Cambridge í Englandi. Þar voru hm 13 þúsund manns að meðtöldum þeim, sem tilheyrðu sértrúar- llokkum. Þar voru 2 kirkjur, og starfsmenn auk sóknarprests- ms 2 aðstoðai-prestar og stúlka, sem annaðist einkum starf meðal kvenna í söfnuðinum og liafði fengið til þess sérstaka ment- "n. Mundi þetta einhversstaðar þykja sómasamlega fyrir starfs- niönnum séð. Menn beri saman ástandið hér i Reykjavík. 18*

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.