Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 26

Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 26
280 Kirkjufundur. Kirkjuritið. skólanna. Hann er ekki aðeins frægur skólamaður og ritliöfundur, heldur góður og mikilvirkur kirkjumaður og á sæti í Diakoni- styrelsen. Hann hefir þegar áunnið sér gott nafn í kirkjusögu Svi- þjóðar. É'g kom til Sigtúna seint í marz síðastliðnum. Snjór var enn á jörðu, en vorið var að koma, sólin hækkaði á lofti og hræddi snjóinn og þýddi klakann. Það voru sólbjartir dagar. Og í salarkynnum hinna ágætu skóía var blær vorsins og fegurðar- innar. Ég minnist hinna glöðu æskumanna. Þar var sól í sál og sumar í hjarta. Ég gleymi ekki þeim anda vináttu, bjartsýni og trúar, sem þarna ríkti undir handleiðslu hins trúaða og um leið víðsýna leiðtoga, sem gert liefir Sigtún að miðstöð menn- ingar og kristnilífs i þessu glæsilega landi. Þegar ég nú rifja upp minningarnar um þáttöku leikmanna i kristilegu starfi erlendis, þá er það margt, sem ánægjulegt er að minnast. Ég gleymi ekki biblíulestrarfundum í einni kirkjunni i London, sem voru svo vel sóttir, að nærri var hvert sæti skipað af áhugasömum áheyreiidum ungra og gamalla af öllum stéttum. Ég gleymi ekki fundum í drengjafélagi þar í einum söfnuði. Mætti venjulega hver einasti félagsmaður, og það var ánægjulegl að heyra vitnisburð og trúargleði hinna ungu manna, sem þar töluðu og stjórnuðu. Ég minnist liins stórmerka starfs, sem unnið er meðal atvinnuleysingja í Kaupmannahöfn af ungum manni, sem heitir Aage Falk Hansen, manns, sem skilur kjör þeirra betur en flestir aðrir og þeir dá og virða. Voru guðsþjónustur lians svo vel sóttar, að þessir menn töldu það ekki eftir sér að standa í hópum 1—2 klukkutima fyrir utan dyr samkomuhússins til þess að geta tekið þátt í guðsþjónustunni. Húsið var ávalt ]iéttsetið og þar samankomnir menn hundruðum saman. Oft fær liann ein- hvern þessara manna til þess að tala og flytja vitnisburð á þess- um guðsþjónustum, og er það áhrifamikið, og margir þeirra vinna óþreytandi að því, að bjarga félögum sínum og heimilum þeirra. og er starf þetta i alla staði hið merkilegasta. Ég minnist fundar með um 60 af prestum Kaupmannahafnar, en þar voru mættir 3 leikmenn tilheyrandi Oxfordhreyfingunni nýju. Einn þeirra var læknir, hinir 2 verkfræðingar. Ekkert af því, sem sagt var á þessum fundi, liafði eins mikil áhrif eins og vitnisburður þessara manna, er þeir lýstu því, hversu óumræðileg blessun þeim hefði hlotnast fyrr þeirra eigin lif og fyrir heimili þeirra, er trúarlíf þejrra hafði vaknað og þeir öðlast samfélag við Guð og frelsarann Jesú Krist. Allir liöfðu þeir áður staðið algjörlega utan við alt trúarlíf. Einn þeirra hafði ekki i kirkju konúð frá því á fermingardag, þar lil líf hans breyttist nýlega fyrir áhrif frá Oxfordhreyfingunni. En það er einkenni þeirrar hreyfingar,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.