Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 33

Kirkjuritið - 01.07.1936, Side 33
Kirkjuritið. Kirkjiiíiindur. 287 happadrjúgar leiðir, en iiitt veit ég líka, að þeir gælu orðið fleiri, ef þeim væri bent á þörfina. Og einmitt það, sem æskumaður- inn þráir heitast i trúarstríði, er að geta fengið einhvern góðan mann ao trúnaðarvini sínum, ef það gæti orðið til þess, að hann kæmist að liinu rétta, svo að efinn mætti hverfa. Og ef allir fyndu köllun hjá sér til þess, yrði áreiðanlega mörgum hjálpað. Eg veit, að slikt er vandaverk. Ég veit vel, að hver sá, er þetta reynir, verður að setja sig vel í spor æskumannsins, verður að reyna að skilja liann. Hann verður einnig að gæta þess að vanda ekki um of um við hann — heldur leiða hann áfram með skyn- samlegum bendingum og rökum og vera ófeilinn við að kynna honum sína eigin trúarlegu reynslu og láta hann finna það, hvert gildi trúin geti haft fyrir manninn — í fám orðum láta sann- færinguna, skilninginn og bróðurkærleikann tala. Þá er annað atriðið, og það er, að presturinn taki unga menn og fræði þá, og geri það ókeypis. En í hverju á sú fræðsla að vera fólgin? í vetur sem leið gerði ég ofurlitla tilraun með þetta. Ég gaf öllum unglingum kost á að koma til mín öðru hvoru. Ég var þannig settur, að þeir gátu fyrirhafnarlítið komið þvi við, og til mín komu allir unglingarnir úr nágrenninu. Fræðslu mína sneið ég þannig, að ég reyndi að kenna þeim að meta gildi bók- menta vorra og temja þeim fagran smekk á mælt og ritað mál — gerði mér yfirleitt far um að glæða lijá þeim fagurt andlegt líf. Ég veit ekki um árangur, og mér fanst mér þakkað meir en vert var, enda voru ástæður mínar þannig, að þetta gat ekki orðið eins fullkomið og ég hafði óskað. Ég er nú fluttur á annan stað í prestakallinu, þar sem ég, því miður, get eklci komið þessu við, og ég veit, að svo er ástatt um marga. En ég vildi beina þeirri áskorun til allra embættisbræðra minna, sem eru vel settir hvað alla staðhætti snertir, að gera slíka tilraun, hafi þeir ekki gert það enn. Ég veit, að slíkt stendur til bóta, og lijálpar áreiðan- lega mörgum. Unglingurinn kynnist presti sínum, fær traust á honum og snýr sér jafnvel til hans, þegar hann á í vanda, og er það ekki einmitt í áttina að markinu? Þá er þriðja atriðið, skipulagsbundinn ungme.nnafélagsskapur. Vér höfum öll heyrt um K. F. U. M. Sá félagsskapur hefir áreiðan- lega haft mikið gildi og hjálpað mörgum ungum manninum til að finna Krist, en slíkur félagsskapur á erfitt uppdráttar þar sem strjálbýlið er. í kaupstöðum landsins er hann nauðsynlegur, og ég vil beina þeirri áskorun til presta og leikmanna, að taka hér höndum saman og stofna kristilegan ungmennáfélagsskap þar sem hann er ekki til áður, það er fagurt starf og leiðir ávalt til blessunar, og hennar meiri en oss geti órað fyrir.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.