Kirkjuritið - 01.07.1936, Síða 35
KirkjuritiS.
Kirkjufundur.
KIRKJAN OG ÆSKAN.
289
ÚTDRÁTTUR
ÚR FRAMSÖGURÆÐU SÉRA ÞÓRÐAR ÓLAFSSONAR.
Ef einhver læki sér fyrir hendur aS athuga nákvæmlega ytra lit-
lit nokkur þúsund manna, mundi hann komasl að raun um, að
vandfundnir eru tveir, auk heldur fleiri, sem væru algerlega
eins að ytra úlliti. Svo mikil er margbreytnin i útliti manna.
En hitt mundi 'heldur ekki dyljast, að þrátt fyrir þessa miklu
margbreytni er það ýmislegt, sem sameiginlegt er fyrir allar
þessar þúsundir. Ef við ættum þann sjónarhæfileika að geta
eins virt fyrir oss „hinn innri mann“, mundi hið sama verða
uppi á teningnum. Ef slíkri athugun væri beint að börnum
á aldrinum upp að 14 árum, aldrinum þegar líkamleg og and-
leg mótun einstaklingsins á „nokkuð i land“, dylst það ekki, að
þar er sömu margbreytnina að finna í ytra útliti, en hinsvegar
dylst það ekki, að undantekningarlítið er ýmislegl í fari ungbarn-
anna sameiginlegt fyrir þau, og er í þessu sambandi vert að gera
sér grein fyrir þeirri sameign.
Er þá fyrst að minnast þess, hve ljóselskt barnið er. Undir eins
og vitundarlífið er vaknað, leita augu l)ess að því, sem er skínandi
og fagurt. Meðfædd lireinleika og fegurðarlmeigð birtist þar.
Hve yndisleg er hreinslcilni hins unga barns, það kemur lil dyr-
anna eins og það er klætt og segir hispurslaust hug sinn allan.
Þegar við sjáum og athugum barnið hvílandi við móðurbrjóstið,
dylst ekki öruggleikatilfinning þess og þakklát ást, það dylst ekki,
að það hefir hæfileika til að veita áStríkinu viðtöku og endur-
gjalda með ást og trausti.
Hér birtast guðlegar gjafir, guðlegur arfur:
Hreinleiki. Sannleiksást. Kærleikslund. Trúnaðartraust.
Þessa hæfileika ríður lifið á að rækta sem bezt hjá barninu,
svo að þeir megi móta gjörvalt lífið.
Þessu hafa menn snemma veitt eftirtekt, og á það benda orð
vitringsins, um hina miklu nauðsyn þess, að kenna þeim unga
þann veg, sem hann á að ganga, vegna þess að þá sé mest trygg-
ing fyrir því, að hann víki ekki af honum, þegar hann eldist.
Enn þá skýrar og með guðlegum myndugleik er þetta sama
tekið fram í orðum hans, sem öllum er vegurinn, um leið og
hann er sannleikurinn og lífið, þar sem hann segir: „Leyfið börn-
unum lil mín að koma, því þeirra er guðsríkið".
19