Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 15

Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 15
Kirkjuritið. Gimsteinn á dagana festi. 357 þessu sviði, sem Jjirtan, er út frá jólunum stafar, kem- ur til vor mannanna með hjálpræðismátt sinn. Undur- samlegir hlutir eru unnir oss til lianda. Með hinum dá- samlegasta hoðskap og guðdómlegri elsku boðar frelsar- inn mannanna börnum fyrirgefningu syndanna, og hann Ivftir upp fyrir oss fortjaldi hinna dýrðtegustu bústaða handan við gröf og dauða. „í húsi föður míns eru mörg lúbýli og ég fer burt að húa yður stað, — og ég mun taka yður til sjálfs mín, til þess að þér séuð og þar, sem ég er.“ Og upprisa hans er innsigli staðreyndanna á þennan hoðskap. Fyrir þennan hjálpræðismátt hans, sem á jólunum fæddist, hefir vitund manna gefist möguleiki til að sjá, jafnvel áður en hérvistarlífið er alveg sloknað, sjá inn í dásamlega tilveru, — sjá unaðslegar verur koma á móti sér, — angandi blóm og mikla unaðslega birtu. — Það eru mörg dæmi til þvílikra sýna, ekki sýzt hjá börnum. Hvað eigum vér að segja um þetta? Getum vér nokkuð annað g'jört en fallið á kné, gagnteknir af undrun, lotningu °g þakklæti til hans, sem „kom og gjörðist fátækur vor vegna, til þess að vér skyldum auðgast af fátækt hans“ og lofað góðan Guð fyrir, að til er „sú rödd, er brevtir daufri nótt í dag, og dauðans ópi snýr í vonarhag“. *** Kynslóð vor mun all-alment haldin ekki svo litlum vits- ^iunaþótta. Þess vegna mun það ekki óalgengt nú, að nokkur efi um raunveruleika fylgi þeirri undrun, er frá- saga jólaguðsspjallsins vekur. En þegar það er athugað, sem liér hefir verið á minst, þá virðist mér það liefði mátt teljast miklu furðulegra og' ótrúlegra, ef ekkert ó- vanalegt hefði gerst við fæðingu frelsarans á jörðu. — Atburðirnir í Betlehem eru heldur ekki einu undrin, er uiæta hugsun vorri. Hver, sem vel teknr eftir, sér, að hann er ‘iaglega umkringdur furðulegum hlutum í sköpunar- verki Guðs. — Og hinn dásamlegi kærleiksmáttur frels- arans á mannleg hjörtu, sem opna sig fvrir lionum, — trú-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.