Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 19

Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 19
Kirkjuritift. Kirkja Fínnlands. 361 kólsks kyns. Auk þessara tveggja slofna búa Lappar á við og dreif í nyrztu héruðunum. Ég veit ekld, hvort menn hafa gerl sér grein fyrir því, þegar minst er á kirkju Finnlands, að lnin er miklu yngri en kirkja Islands. Og þetta lætur undarlega í eyrum. — Þegar kristni var lögtekin hér árið 1000, þá hafði finsku þjóðinni engin vitneskja horist um kristindóm. Enn sat liún í myrkri lieiðindómsins. Það er ckki fyr en á 12. öld, er Svíar fara að leggja undir sig Finnland, að hún kynnist honum. Krossferðatímahilið hafði gengið vfir álfuna og nú beina Svíar krossferðum sínum í Austurveg. Hin fyrsta Finnlandskrossferð var farin laust eftir miðja 12. öld. Sjálfur Uppsalabiskupinn, Henrik að nafni, tók þált i henni. Varð mikið ágengt i þeirri för að kristna •andið. Biskupinn varð eftir í landinu til að vinna að efl- higu kristindómsins. En hann var mvrtur. Síðar varð liann einn helzli dýrlingur Finnlands í katólskum sið. Með lyrstu krossferð getum við sagt, að kirkja Finnlands verði lyrst til. En þá og lengi siðan var landið biskupslaust, og laut Uppsala-biskupsdæmi, er þá var nyrsta biskupsdæmi Kviþjóðar. Landvinningum og trúboði Svía hélt áfram > Finnlandi og sóttist seint. Um miðja 13. öld og undir lok liennar voru farnar tvær meiri háttar krossferðir til Mið- og Austur-Finnlands og urðu þær báðar mjög blóð- llgar. En eftir þær má þó telja, að Svíar hafi náð vfir- ráðum yfir Finnlandi og kristnað þjóðina að vísu aðeins að nafni til. Og kristnil)oð meðal Lappanna og afskektustu héraðanna þektist ekki fyr en löngu siðar. Af þessu, sem hér hefir verið sagt í mjög stuttu máli, má sjá, að kirkja Éinnlands er miklu vngst Norðurlandakirknanna. — Og alt katólska tímabilið er hún mjög veigalitil og elur enga verulega afburðamenn. Þó eignast hún biskupsstól í Ábo seint á 13. öld, er fyrst laut Lundar og síðan Uppsala bisk- api. Er Ábobiskupsdæmið hið eina i landinu langt fram vfir siðbót. — En það er ekki fyr en með henni, að kristin- dómurinn festir verulega rætur hjá þjóðinni.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.