Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 21

Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 21
Kirkjuritið. Kirkja Finnlands. 363 una. Svo sterk voru áhrif Agricola á þjóðina, að þegar Jóhann konungur III., sonur Gústafs Vasa, er hneigðist til kaþólsks siðar, vildi innleiða „Rauðu bókina“ (helgi- siðabók í kaþólskum anda), var því illa tekið og féll til- raun hans um sjálfa sig. — Starf finsku kirkjunnar eftir daga Michaels Agricola er hið merkasta. Ivirkjan eignaðisl marga dugandi og áhugasama menn á biskupsstóli. Fvrir forvstu þeirra gengu prestar kirkjunnar duglega fram í því að eyða fáfræðimyrkrinu, sem mestur hluti þjóðar- innar var hneptur í. Prestarnir höfðu lestrar- og skriftar- kenslu á hendi og höfðu alt fram á 20. öld, a. m. k. í af- skektari bygðunum. Þegar skólaskyldan var lögleidd, kom i ljós, að fáir voru ólæsir og óskrifandi. Ber það kenslu prest- anna gott vitni. Kirkjurnar um hið víðlenda og slrjál- hygða land komust undir eina stjórn, og fólkinu var boðað hið lifandi orð fagnaðarerindisins. Farandprestar eða. trú- hoðar voru sendir í Lappabygðirnar, sem hingað til voru heiðnar — þó að til skamms tíma Iiafi þótt hera við, að Lapparnir væru blendnir í trúnni. - Eins og ætla má, hafa helztu trúarstefnurnar, er geng'- ið hafa vfir Evrópu á liðnum öldum síðán daga siðabót- arinnar, ekki farið alveg fram hjá Finnlandi. Má þar uiinna á rétttrúnaðarstefnuna (orþodoxíuna), er ól marga dugandi menn, er efldu kirkjuna út á við og skipulögðu starfsemi hennar. Skynsemistrúin (rationalisminn) lagði mikla áherzlu á veraldleg umsvif prestanna. Enda kom hún þeim sið á, er lengi liélzt síðan, að prestarnir hefðu hrepps og félagsmál flest í hendi sér úti um landið, og' hlóðust þannig á þá mikil störf, en um leið völd. Báðar þessar stefnur hygðu upp líkama finsku kirkj- unnar, skópu henni áhrif og mátt ytra séð. —En nú kom þriðja stefnan til sögunnar, vandlætingastefnan (pietism- inn). Hún varð mjög sterk í Finnlandi. Hún efldi anda kirkjunnar, lilúði að trúarþeli barna hennar. Hún kom M stað merkilegum trúvakningastefnum, sem kirkjusaga íslands á engar liliðstæður að.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.