Kirkjuritið - 01.12.1939, Síða 31
Kirkjuritið.
Kirkja Finníands. 373
Borgá mjög merkilegt hús frá byrjun 15. aldar. í henni
var ég viðstaddur prestsvígslu, er var sú eina er ég' sá í
Finnlandi. Aðstoðuðu biskup við hana, auk kórshræðra,
mjög margir nágrannaprestar. Sitt til hvorrar handar
biskupi, er var í hiskupskápu með mítur á höfði og bisk-
upsstaf í hendi, fyrir háaltari, stóð Iieil röð presta. Vígslan
var ólík um margt íslenzkri prestsvígslu og fór fram að
kvöldi á virkum degi. Út úr aðalkirkjunni, sem bygð er úr
grásteini, er allstór trékirkja, þar sem skírn og gifting og
aðrar kirkjulegar athafnir fara nú fram. Áður var sú kirkja
l vrir Finn-Finna, þ. e. a. s. þeir voru settir skör lægra
on sænskir Finnar, og voru ekki gjarna teknir inn í aðal-
söfnuðinn. Kom síðar af þessum sökum minni máttar
kend Finn-Finna fram í ofsókn á hendur Sænsk-Finnum.
ÁLik þessara tveggja fornfrægu kirkna heimsótti ég dóm-
kirkjuna í Pargas, sem mér þótti ein allra fallegasta kirkja,
er ég sá í Finnlandi. Yfirprestur við hana er I. Sahlin, er
S0eti á í dómsamkundunni í Borgá. í hinum myndarlega
prestahóp, er stóð fyrir framan háaltarið í Borgádóm-
kirkju við prestvígsluna, var mér starsýnt á einn mann-
bm, sem ég þekti síðar að var Sahlin. Hann var stór, falleg'-
Ur °g drengilegur. Er ég kom til Pargas síðai', sýndi hann
mér hina fögru kirkju. Á eftir mintist hann á Z. Topelius
við niig og spurði, hvort íslendingar könnuðust við hann.
úg kvað svo vera, þar sem eitt af hans aðalverkum væri
býtt á íslenzku og hefði verið mikið lesið. Hann sagði, að
sér þætti garnan að heyra það, þar sem Topelius hefði
verið sér náskyldur, ömmubróðir sinn. - - Hinar gömlu
kirkjur Finnlands margar hverjar eru um leið og þær
eru kirkjur einskonar forngripasöfn. Skjaldarmerki gam-
aba aðalsætta, sverð og önnur vopn og verjur hanga á
voggjumim og minna á liorfnar og herskáar kynslóðii'.
3iuustaðar er styttum af frægum fornum liöfðingjum
‘Oinið fyrir. 1 Borgádómkirkju stendur t. d. stytta af Alex-
ander I. Rússakeisara, en í kirkjunni unnu stéttir Finn-
ands honum trúnaðareið 1809.