Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 65
Kirkjuritið.
íslenzkar bækur.
407
Eivind Berggrav: Hálogaland. Leifturniyndir frá vísitazíuferð-
um í NorSur-Noregi. Ásmundur GuSmundsson og, Magnús Jons-
son þýddu meS leyfi liöfundarins. Prestafélag íslands gaf ut.
Heykjavík 1939.
Bókmentavinir mun fagna því, aS bók E. Berggravs biskups ei
nú komin út í íslenzkri þýSingu. Bókin vakti mikla atliygli alsta'
ar á NorSurlöndum, er lnin kom út fyrir tveimur árum siSan, og
hefir eflaust veriS mjög mikiS lesin i nágrannalöndum vorum,
ekki sizt i Noregi, þar sem lesendur þektu bezt til staShátta og
þess fólks, sem bókin aSallega lýsir. Eivind Berggrav biskup er
einn þeirra manna, sem hvaS mest er hlustaS á í Noregi. Hann
er mikill kirkjuhöfSingi, gáfu- og mælskumaSur og afar snjall i it-
böfundur. En auk þess mun liann vera einkar vinsæll meS þjoS
sinni. Bók hans, Hálogaland, ber vott um ritsnildarhæfileika hans;
frásögn hans er afar lifandi og skýr, og viS lestur bókarinnar
sannfærist maSur um hinn djúpa skilning hans á mannlifinu,
skilning hans á hinni hörSu lífsbaráttu, sem mætir augum hans
viS Lofoten og í Norour-Noregi. Hann liorfir augum samúSar og
skilnings á þetta dula, djarfa og þrautseiga alþýSufólk — á striS
þess — á sorgir þess og gleSi. En þaS er ekki aSeins hiS fulltiSa
fólk og viSfangsefni þess, sem hann skilur. Hann skihir einnig
börnin, og veit ég, aS mörgum mun verSa minnisstæSur sá þátt-
ur bókarinnar, sem sýnir hvernig hann talar viS og spyr börnin
á ferSum sinum. ÞaS er liolt og göfgandi aS lesa bók eins og
Hálogaland; bæSi aS kynnast hinum göfuga hugsunarhætti liöt-
undarins, og þvi fólki, sem hann segir frá og lýsir. A bak viS
frásögn lians alla er heit og fögur trúartilfinning, maSur, sem
hráir aS guSsríki komi. Ég hygg, aS íslendingum verSi bokin
kaerkomin. Án efa fagna allir kirkjunnar menn henni.
Higa þeir prófessorarnir Ásmundur GuSmundsson og Magnús
Jónsson miklar þakkir fyrir aS hafa þýtt hana. ÞýSing þeirra ei
ágæt. Hefir þeim báSum tekist aS ná þeim blæ, sem au'Skennii
bókina á frummálinu, eSa stil höfundarins; og er máliS á íslenzku
býðingunni gott. LítiS um prentvillur, enda allur frágangur bok-
urinnar í ágætu lagi.
Kirkjulegar bókmentir á islenzkri tungu eru auðugri eftir út-
koniu þessarar bókar, og vel fer á því, aS Prestafélag íslands
varð til þess aS: kosta útgáfuna. —
Signrgeir Sigurðsson.