Kirkjuritið - 01.12.1939, Qupperneq 68
Innlendar fréttir
Nóv.-Des.
'410
1910, en var þegar áður farinn að gefa sig við barnakenslu. Hefir
liann flest árin sint því starfi, fyrst 10 ór ó Kjalarnesi, þá 4 ór í
Kjósarhreppi og loks 20 ár í Viðey. Ásmundur Þórðarson hefir
rœkt starf sitl með hinni mestu samvizkusemi, enda uppfræðsla
barnanna verið honum hjartans mál. Jafnframt hefir honum verið
það sérstaklega ljóst, að framtíðarheill barnanna er þá bezt horg-
ið, að þau þegar í æsku kosti kapps um að hafa Jesúm Krist að
leiðtoga lífs síns. Fyrir því hefir hann og alla sina kennaratíð ver-
ið hinn einlægasti stuðningsmaður kirkju og kristindóms og talið
hoðun fagnaðarerindisins eina af höfuðskyldum sínum sem fræö-
ara hinna ungu. Um margra ára skeið hefir hann og verið með-
hjálpari í Viðeyarklausturskirkju og safnaðarfulltrúi sóknarinn-
ar. Hann er kvæntur ágælri konu, Guðiaugu Bergþórsdóttur, sem
mjög er honum samhent í öllu. Með Ásmundi Þórðarsyni hverfur
úr barnakennarastéttinni einn þeirra manna, sem kirkja vor
stendur í mikilli jiakkarskuld við fyrir órofa trygð hans við
hana og málefni hennar, hæði i kenslustundum og utan þeirra.
Hálfdan Helgason.
Séra Ólafur Magnússon prófastur í Arnarbæli
hefii- fengið lausn frá prófastsstörfum frá næsta nýjári. En prests-
starfinu mun hann gegna lil fardaga.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík 40 ára.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík átti 40 ára afmæii sunnu-
daginn 19. nóv. Var þess minst í útvarpserindi, sem prestur
safnaðarins, séra Árni Sigurðsson, flutti kvöldið fyrir, og í há-
tíðaguðs])jónustu í Fríkirkjunni á afmælisdaginn, þar sem hann
prédikaði. Á sunnudagskvöldið var samkoma í kirkjunni, og
flutti þá m. a. Stefán Snævarr stud. theol. erindi um Kagawa,
kristnu trúarhetjuna í Japan. Söfnuðinum bárust tvær veglegar
afmælisgjafir, bók með útskornum spjöldum frá kvenfélagi safn-
aðarins og fjárhirzla fró Sigurði Halldórssyni trésmíðameistara
og frú hans.
Fríkirkjusöfnuðurinn hefir vaxið mjög og' efist á þessum ára-
tugum, því að bæði hafa prestar lians verið áhugasamir hæfi-
leikamenn og atorkumenn og þeir notið stuðnings ágæts safnað-
arfólks. Eru nú í söfnuðinum alls 8500. Samstarf safnaðarins við
Dómkirkjusöfnuðinn er hið bezta og þátttaka hans ágæt í hvers-
konar samvinnu, sem verið hefir á undanförnum árum, að krist-
indómsmálum og mannúðar.
Kirkjuritið óskar söfuðinum og presti hans allra heilla og
blessunar.