Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 4

Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 4
Júní-Júlí. Kvöldsálmur barna. (Lag: Ég minnist þin. .. . Eftir Julie Tntein). Hin dimma nótt um sinn nú sigrað hefur og svefnsins þrá. Ó, drottinn, þú, sem góðar nætur gefur, oss gistu hjá. Og leyf, að þínir ljóssins englar vaki og lýsi mér í draumsins fagra heim að húmsins baki — unz húmið þver. Þar vilja þinn og sannleik þann eg sjái, er sigra ber. Og svefninn hrygð og harma burtu mái úr huga mér. Er skinið bjarta skín af degi þínuin um morgunmund, þá einnig birti yfir huga mínum með árdagsstund. Eg fel mig þér, að ekkert ilt mig saki, þú annast mig. Ó, gef að heimur traust mitt aldrei taki né trú á þig. Þitt föðurhjarta elskar alt, sem lifir, um alla tíð. Þitt föðurauga vakir öllum yfir jafnt ár og síð. Og þegar loka’ eg augum síðsta sinni, er sofna eg hér, þá, drottinn, gef, að hvíld og frið eg finni í faðmi þér. Einar M. Jónsson.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.