Kirkjuritið - 01.06.1942, Blaðsíða 22
Í96
A. G.: Stríðskirkja Noregs.
,íúní-Júlí.
og treystum því, að norska þjóðin, sem fetar nú píslar-
ferilinn, fái einnig að fylgja frelsara sínum frá dauðan-
um til lífsins og sjái innan skamms renna upp bjartan
friðardag.
Sælir eru þeir, sem ofsóttir verða fyrir réttlætis sakir.
Þeir, sem sá með tárum, munti uppskera með gleðisöng.
Ásmundur Guðmundsson.
Biblía í hvers manns höndum.
Á 125 ára afmæli Norska Bibliufélagsins komst Berggrav
biskup m. a. svo að orði:
„Markmið vort er þetta: Biblía í hvers manns höndum. Og bak
við það eygjum vér annað mark: Hver maður gleðjist yfir Biblí-
unni sinni. Vér höfum einnig nálgast það mark. Þeir eru ekki
fáir, sem vita það nú, að Nýja testamentið er dýrasta eign þeirra.
Þegar vér lítum til baka yfir liðið ár, sjáum vér, hvernig andi
Guðs hefir látið orð Guðs verða nýtt fyrir oss og lifandi með
hverjum degi.... Ritningarorð hafa verið eins og dýrar peri-
ur. Fjöldi fólks hefir safnast saman um opna Ðibliuna á mótuni,
í heimahúsum og við Biblíulestur. Margir, sem þola þjáningar, ein-
angraðir frá öðrum, lesa ekkert annað en Biblíuna. Hún er eina
ljós þeirra. Fögnuður yfir Biblíunni meiri en nokkuru sinni áður
hefir borist um alt landið.“