Kirkjuritið - 01.06.1942, Blaðsíða 43
Kirkjuritið.
Prestastefnan.
217
fyrir Rípurprestakalli i Skagafjarðarprófastsdæmi og var vígð-
ur þangað árið 1895. Þar starfaði liann í fjögur ár, en þá fékk
hann veitingu fyrir Goðdalaprestakalli í Skagafjarðarprófasts-
dæmi og þjónaði því prestakalli lil ársins 1904. Hætti hann þá
prestskap um liríð, stuiidaði hann verzlunarstörf um tíma, en
luigur hans var eigi að 'síður við prestskapinn, og svo fór, að
hann sótti aftur nm embætti, Staðarhólsþing í Dalaprófasts-
dæmi og þjónaði þeim til ársins 1910. Var honum þá veitt Arnes-
prestakall í Strandaprófastsdæmi samkvæmt kosningu safnað-
arins. Starfaði hann jiar síðan lil ársins 1937, að iieilsu hans
var tekið að hnigna, svo að hann varð að sækja um lausn frá
embætti.
Haustið 1892, hinn 17. september, kvæntist séra Sveinn konu
sinni, Ingibjörgu Jónasdóttur, prests Guðmundssonar, og eiga
þau sjö börn á lífi, og var lieimili þeirra rómað fyrir gestrisni
og góðvild. í skjóli þeirra nutu hau síðustu samvistaráranna
hér i Reykjavík.
Séra Sveinn var hvorttveggja í senn, góður prestur og ágætur
maður. Var hann alveg sérstaklega góðviljaður í annara garð
og hafði hina mestu gleði af jjvi að koma öðrum mönnum til
hjálpar, ef á þurfti að halda. Hann starfaði lengst í nokkuð
afskektu prestakalli, en hann átti þaðan að minnast ánægju-
ríkra daga. Hann var vinsæll meðal safnaðarfólksins, og hann
átti góða konu, góð börn og gotl heimili. Hann elskaði prests-
starfið, ekki sízt barnafræðslustarfið, og munu minningarnar
um liann allsstaðar meðal safnaðanna, sem hann þjónaði, vera
fagrar og bjartar. Hann var gláður, vingjarnlegur í umgengni
og sérstaklega góður félagi og bróðir. Þessvegna var hann okkur
öllum, sem þektum hann, einkar kær, og söknum vér góðs vinar,
er hann er horfinn sýn. Vér vottum minningu hans virðingu
'’ora með jjvi að rísa úr sætum.
2. Séra Þorsteinn Ástráðssun frá Staðarhrauni lézt liér i
Keykjavík 17. marz ]). á. eftir langa og mjög erfiða vanheilsu.
Séra Þorsteinn fæddist i Reykjavík 4. okt. 1894. Foreldrar
hans vorú Ástráður Hannesson, afgreiðslumaður, og kona hans,
Ingibjörg Sigríður Einarsdóttir. Stúdentspróf tók liann vorið
1914 við hinn Almenna 'Mentaskóla í Reykjavík og lióf j)á um
haustið nám í Guðfræðideild Háskóla íslands. Lauk hann em-
bættisprófi veturinn 1918. Vígðist Iiann tii jirests 2. júní 1918
og fékk veitingu fyrir Mjóafjarðarprestakalli i Suður-Múla-
prófastsdæmi. Eftir nokkur ár fékk liann veitingu fyrir Prests-
bakkaprestakalli í Strandaprófastsdæmi og fáum árum siðar
Staðarhraunsprestakall í Mýraprófastsdæmi, er hann þjónaði til