Kirkjuritið - 01.06.1942, Blaðsíða 65
Kirkjurítið.
Akranesmót.
239
búnihgur fór fram fyrir mótið, og var það með líku sniði og
fyrri mótin, en það setti sinn svip á þetta mót, eins og að líkum
lætur, að þaS var nú haldið í kaupstað. Séra Þorsteinn Briem
hafði góðfúslega lánaS Akraneskirkju til messuflutnings og ræðu-
halda. Kirkjan er mjög inndæl aS innan, látlaus en fögur. ViS
forhlið kirkjunnar var komið fyrir íslenzkum fánum og hátíða-
flöggum, og hin mikla tjaldborg, sem reist var á kirkjuvallar-
túninu, var einnig fánum prýdd. í þessari tjaldborg töldust vera
um 90 tjöld smá og stór.
Hinn langþráði dagur, laugardagurinn 20. júní, rann upp sól-
bjartur og lilýr. Undirbúningi var að mestu lokið, enda var
alt tilbúið að lieita mátti, þegar þátttakendur frá Reykjavik
komu með varðskipinu Ægi laust fyrir kl. 5 siðdegis á laugar-
dag, og ld. 6 hófst mótið með guðsþjónustu i Akraneskirkju,
þar sem Bjarni Eyjólfsson flutti prédikun, en séra Sigurður
Pálsson var fyrir altari. Kl. 9 um kvöldið talaði stud. theol.
Jóhann Hlíðar í kirkjunni og hafði að hugleiðingu efnið: „Faðir
vor, þú, sem ert á himnum“.
Á sunnudag kl. 10 f. li. talaSi Steingrímur Benediktsson kenn-
ari um efnið: „Helgist nafn þitt, komi ríki þitt“, og kl. 2 pré-
dikaði séra Þorsteinn Briem, en séra SigurSur Pálsson þjónaði
fyrir altari. Þessi messa og sömuleiðis messan, sem flutt var á
laugardag, voru tilkomumiklar og fjölþættari en messur alment
eru, enda liafa margir fagrir gimsteinar glatast úr hinni fornu
íslenzku messu, sem þarna var leitast við að leiða í Ijós. Kl. 5
var samkoma á kirkjuvallartúninu, jiar sem cand. theol. Gunnar
Sigurjónsson talaði, og kl. 9 e. h. var hugleiðing' í kirkjunni um
efnið: „Daglegt brauð og fyrirgefning synda, og talaði séra
Magnús Guðmundsson. Úr kirkjunni var haldið lieim í stóra
samkomutjaldið i tjaldborginni, þar sem fluttar voru frjálsar
ræður og vitnisburðir, sem stóðu yfir. nokkuð farm á nótt, og
var sú stund ánægjuleg en sérkennileg að mörgu leyti.
Á mánudag um kl. 9 hófst samkoma á kirkjuvallartúninu, þar
sem cand. theol. Ástráður Sigursteindórsson talaSi út frá efninu:
„Leið oss ekki i freistni, heldur frelsa oss frá illu“, og kl. 11
f. li. talaði séra Bjarni Jónsson í kirkjunni. Samkomurnar, sem
baldnar voru á túninu, voru mjög. hrífandi, enda var sungið við
raust i sólskini og sumarbliðu. Það var eins og náttúran tæki
undir lofgjörðina til Guðs. Kl. 1 e. h. var barnasamkoma og
kl. 2 kristniboðssamkoma í kirkjunni, og talaði Ólafur Ólafsson
kristniboði. Ráðgert var, að samskot færu fram meðal móts-
gesta til styrktar kirkjunni á Akranesi, en séra Þorsteinn Briem