Kirkjuritið - 01.06.1942, Blaðsíða 14
188
Ásmundur Guðmundsson:
Júní-Júli.
og móðir liafa réttindi og skyldur til þess að innræta
börnum sínum trú kirkjunnar og' kristilegt líf. Er því
sjónarmiði einnig haldið fram í stjórnskipunarlögum
Noregs, þar sem stendur: „Evangelsk lútersk trú mun
halda áfram að vera trú rikisins”. Ibúar Noregs játa þessa
trú og eru skyldir til að ala börn sín upp i þessari trú.
Kirkjan myndi bregðast skyldu sinni og þeirri ábyrgð,
sem á henni hvílir, að annast kristilegt uppeldi barna
sinna, ef hún léti það viðgangast þegjandi og liljóða-
laust, að veraldarvaldið kæmi því skipulagi á siðferðis-
uppeldi barnanna og þjóðarinnar, er væri óháð kristi-
legri lífsskoðun. Foreldrum og kennurum má engan
veginn þröngva til þess að breyta á móti samvizku sinni
og koma börnum sínum í fóstur, sem myndi gjörbrevta
hugsunarhætti þeirra og flvtja þeim kenningar um lífið,
sem ekkert eiga skvlt við kristindóm".
Ríki og kirkja.
-,Um rétta afstöðu kristinna manna og safnaðanna til
ríkisvaldsins: Vér vottum það, að trú kirkju vorrar
gjörir skarpan greinarmun á tvennskonar valdssviðum,
veraldarríkinu og ósýnilegu kirkjunni. Það er vilji Guðs,
að þetta tvennskonar vald sé fyllilega aðgreint. Hvort
um sig' á að þjóna Guði á sinn hátt. Hvort um sig hefir
að rækja sitt hlutverk frá Guði. Hlutverk kirkjunnar er
það að vaka vfir því, sem liefir eilífðargildi, og láta ljós
Guðs orðs lýsa á öllum vegum mannanna. Um hlutverk
ríkisins aftur á móti segir trú vor það, að ríkið eigi
ekkert vald á sálunum, heldur sé hlutverk þess í þvi
fólgið að vernda einstaklinga og hluti þessa heims fyrir
berum rangindum og halda uppi þeirri reglu með mönn-
unum, að horgaraleg réttindi þeirra standi óhögguð.
Þessvegna vottum vér það, að það sé synd gegn Guði,
drotni og stjórnanda alls skipulags, þegar annað valdið
leitast við að undiroka hitt. Kirkjan óskar þess ekki að
drotna yfir ríkinu í tímanlegum efnum. Það væri að
fótum troða boðskap Guðs. Á sama hátt er það synd