Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 25

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 25
Kirkjuritið. Kirkjan og rikið. 199 við börnin fyrir fermingu, í fáar vikur, er ekki á borð við reglubundna kenslu öll skólaárin. Að fækkun presta hlýtur að draga úr starfseminni, et' augljóst. Það er öllum kunnugt, að starf presta er i fjórum aðalþáttum: Að annast kristindómsfræðslu barna °g unglinga og innræta þeim kristna lífsskoðun, að ræða við einstaklinga, þegar svo ber undir, um andleg vanda- Oiál og auka þeim þannig skilning og sálarþrótt, að framkvæma messugjörðir og að framkvæma hin svo nefndu aukaverk. Mjög oft verður vart við þá röngu skoðun á starfsemi prestanna, að bún sé aðallega falin 1 tveim síðastnefndu atriðunum, messugjörð og auka- verkum. Rúmið leyfir ekki að fara bér ítarlega út í starfsemi kirkjunnar. Það eitt skal sagt, að bæði fyr- 'iefndu atriðin eru ekki síður mikilvæg en bin siðari, °g umgetin slcoðun er því röng. En hún er jafnframt ó- keillavænleg, því að þverri framkvæmd þeirra atriða, Þá hnignar trúar- og kirkjulífinu. En þessir þættir starfs- Jns iiljóta einmitt að bíða mestan hnekki við fækkun Úi'estanna og stækkun prestakallanna. Svipað á vitan- fega við um messugjörðir, en á því er ráðin nokkur bót 'neð útvarpinu. Útvarpsguðsþjónustur geta þó ekki kom- í stað kirkjugöngu. Menn fá að vísu ágætar stólræður 1 útvarpi, og þeim, sem aðeins sækja lcirkju til þess að fá trú- og siðfræðilegan fyrirlestur, finst það nóg, en Sagnið af kirkjugöngu er einnig þau góðu og hollu hug- aráhrif, sem skapast af því, að taka virkan þátt í kirkju- guðsþjónustu með trúuðum söfnuði. Aukaverkin geta fU’estar framkvæmt, þótt prestaköllin stækki eitthvað. ún sé starfið einkum miðað við þau, þá er skammt eftir að því marki, sem sýnilega að er stefnt, að afnema að Uiestu lærða prestastétt með langri og dýrri undirbún- fugsmentun. Við svo búið má ekki standa. Það verður að finna leið, sem bæði er sanngjörn gagnvart ríkinu og tryggir

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.