Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 34

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 34
Sálmur, I>ú sendir inér, drottinn, líkn og lið á leið gegnum þyrnistiginn. Ó, kenn mér að biðja brjóst þitt við sem barn, unz að sól er hnigin. Og kenn mér, Jesú, að þakka þér, að þú hefir aldrei brugðist mér. Ó, kenn mér að líta þig krossi á í kvölum, með þyrnum stunginn. Til Golgata því ég ganga má, þó græti mig syndaþunginn, og byrði mína þig bera ég sé beint upp á krossins helga tré. Hið heilaga blóð er sú lijálpræðislind, er hjartað fær leyst úr dróma. Minn Jesú, ég færi þér sorg og synd og sárbitra mannanna dóma. Þú, líknsami herra, vilt líkna mér. Ó, lát mig í einlægni fylgja þér. Með þér vil ég bera hinn þunga kross, þó þurfi ég að fórna tárum. Ég horfi á þinn blæðandi benjafoss, sem bót er við mínurn sárum. Þú, líknsami Guð, ég lít til þín, þú lítur ávalt í náð til mín.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.