Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 39

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 39
Kirkjuritið. Prestastefnan. 213 saman brauði. Starfið þa.rf að inna af hendi af lífi og sannfær- ingarkrafti. Boðberar kristindómsins þyrftu á vorum dögum að tala sterkari raustu en ef til vill nokkuru sinni fyr síðan daga frumkristninnar — af því að hættan er svo auðsæ — einnig í voru landi. Féhyggjan heimtar meira rúm í hugum manna en nokkuru sinni áður. Vér höfum oft heyrt um það rætt siðustu mánuðina, að peningarnir séu að trylla fólkið. Þó að ef til vill sé hér um öfgafulla dóma að ræða, þá getur enginn lokað aug- um fyrir því, að þetta eru ekki dagar bugsjónanpa, liinna göf- ugu, háu hugsjóna. Iíirkjan var, ef til vill, ekki nógu vel á verði. Hún sá ekki, bvert stefndi. Hún hugsaði með sér: Nei, menn- irnir leggja ekki út i nýja styrjöld. Menningin, sem' svo var nefnd, færðist í aukana með hverju ari. Nú ætti mönnum að skiljast að taka þarf hlutina öðrum tökum. Mitt i binni ægilegu styrjöld hrópa flestar þjóðirriar og segjast vera að berjast fyrir Guðs trú og eilífri, andlegri lifsskoðun. En hverju fórna þessar sönni þjóðir fyrir guðstrú sína á friðartímum? Þær hafa ekki, nema hlutfallslega örlítill liluti þeirra, tíma til að ganga til guðs- þjónustu í kirkjum sínum. Það kostar baráttu að láta innræta æskulýðnum kristindóm. Víða standa prestarnir aleinir í starfi sinu. Afleiðingar geta ekki orðið glæsilegar, þær hljóta að liafa í för með sér böl, eymd, sár og tár, eins og nú. Höfnun guðs- trúar — afneitun Guðs — hlýtur að leiða til binnar ógurlegustu ógæfu. Svo koma menn, fullir undrunar, og spyrja: „Ég skil ekki lífið. Undarlegur er þessi heimur, sem vér lifum í. Hvi lætur Guð þessu fram fara? Hversvegna skerst hann ekki i leik- inn?“ Það er vitur maður, sem hefir sagt, að öfgar mannanna væru tækifæri Guðs. En þessi orð mundu áreiðanlega skilin af mörgum á alt annan veg en hann ætlaðist til. Ófriðurinn, bin mikla heimsstyrjöld, er ekki ráðsályktun Guðs. Ófriðurinn er ráð mannanna, manna verk að öllu leyti. En hitt er sönnu nær og vonandi rétt, að eins og læknarnir segja, að jtjáning Hkamans, er eitthvað óvenjulegt kemur fyrir hann, sem getur valdið honum tjóni, sé aiveg nauðsynleg honum til leiðbein- ingar og varnar, eins verði hin andlega þjáning mannssálar- innar, eftir að hún hefir breytt gagnstætt hinum belgustu lög- málum, gagnstætt vilja Guðs, henni lærdómsrik og lijálparráð til æðri þroska og innri göfgunar. Kristindómurinn ér einasta athvarfið og bvergi annars staðar sagt til vegar, svo að örugt sé, uema þar. Öldum saman litu menningarþjóðir á ýmsar mannlegar verur eins og nytsöm dýr og létu sér sæma að handleika þær samkvæmt því. Kristindóm- urinn læknaði meinsemdina. Hann tók hina lirjáðu í vernd

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.