Kirkjuritið - 01.06.1942, Qupperneq 48
222 Prestastefnan. Júní-Júlí.
Erlendur ÞórÖarson i Odda, séra Ólafur Ólafsson á Kvennabrekku
o. fl. Óska ég þeim ollum blessunar Guðs.
Allviða er nú hugsað til að byggja nýjar kirkjur, er um liægist
og eitthvað dregur úr erfiðleikum þeim, sem nú eru á því að
reisa liús. í Laugarnesprestakalli í Reykjavík er þeim niájum
iengst komið, því að nú er verið að reisa Laugarneskirkju og
ráðgert, að liún verði komin undir þak á komandi liausti. Bygg-
ingarmál Hallgrímskirkju í Reykjavík er komið það á veg, að
fjársöfnun er hafin af allmiklum áhuga og líkan að Hallgríms-
kirkju er koniið fram. Hefir húsameistari rikisins, prófessor
Guðjón Samúelsson, teiknað kirkjuna og' látið gera likan þetta.
Virðist svo, sem allur þorri manna sé mjög ánægður með, að
Hallgrímskirkja verði í þessari mynd, og' er það vel farið, að
full eining sýnist vera i þessu mikla máli. í Nessókn í Reykjavík
hefir og verið safnað fé, og verður haldið áfram, þar til unt er
að reisa Neskirkju, sem ég vona, að verði fyr en varir. Ég tel
það mjög mikið fagnaðarefni, að í öllum hinum nýju söfnuð-
um hér í Reykjavik hafa verið stofnuð kvenfélög til styrktar
i starfi kirkjunnar, og á ég þá trú, að það muni leiða til mikili-
ar blessunar, bæði í kirkjubyggingarmálunum og i starfi kirkj-
unnar yfirleitt. Á Melstað í Húnavatnsprófastsdæmi, þar sem
kirkjan fauk, mun verða tekið til kirkjusmíðar á þessu sumri,
og að Staðarstað í Snæfellsnesprófastsdæmi er kirkjusmíði ný-
lega hafin. Ailvíða er áhugi og starf, að því er að fjársöfnun
lýtur til nýrra kirkna, og er það vel farið, enda nú betra tæki-
færi en oft áður að safna fé til nytsamra framkvæmda.
f Reykjavík liefir nú verið reist fyrsta prestsseturshús Jjjóð-
kirkjunnar. Stendur það við Garðastræti, og er nýlokið við
smíði þess. Húsið er fagurt og vandað, og hefir dómprófastur-
inn flutt í það, enda hefir hann ötullega unnið að framgangi
þess máls. Þetta hús er ekki reist fyrir fé það, er veitt er á
fjárlögum til húsabóta á prestssetrunum. Auk þessa húss liefir
aðeins eitl prestsseturshús verið í smíðum síðastliðið ár. Er
það að Kolfreyjustað i Suður-Múlaprófastsdæmi. Fé það, stm
ýeitt hefir verið á fjárlögum til þessara hluta, er svo mjög af
skornum skamti, að enn er verið að greiða lán, er á hvildu
vegna prestsseturshúsa, sem reist hafa verið, án þess að fé væri
fyrir hendi, og er þeirri greiðslu ekki lokið enn að fullu. Ég
hefi áður lýst því hér á prestastefnunni, hve brýn nauðsyn er
á því, að meira verði hraðað byggingum á prestssetrum, þai’
sem allviða cr svo ástatt, að prestaköllin eru prestslaus vegntt
þess, að presturinn á ekki í neitt hús að venda. í þessu sam-
bandi skal ég geta þess, að í bréfi, er ég ritaði dóms- og kirkju-