Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 50
224
Prestastefnan.
Júní-Júli.
fyrir gamalt og ellihrumt fólk í landinu og ungt fólk, sem í
hættu er statt siðferðilega o. s. frv. Verkefnin eru óþrjótandi
á þessum sviðum. Vil ég nú leyfa mér að óska þess, að upp í
næstu fjárlög verði tekinn nýr liffur: Til líknarstarfsemi þjóð-
kirkjunnar kr. 50.000.00. Sé með fé þessu stofnaður sjóður minstu
hræðranna og biskupi falin ráðstöfun fjárins ásamt stjórnar-
nefnd, er prestastefna íslands kýs til þessj*
Ekki veit ég, hvernig þessari málaleitun verður tekið á Al-
þingi, en ég vona, að þingmenn þeir, sem næst ganga til starfa,
telji jiessi ráð ekki óviturleg og' sjái, að hér er mikið mannúðar-
og nauðsynjamál á ferðinni, og verði fúsir til að styðja kirkju
Islands til líknarstarfanna.
Á þessu synodusári hefir hinn nýi söngmálastjóri þjóðkirkj-
iiniiar tekið til starfa. Hefir hann verið kærkominn gestur í
söfnuðum þeim, sem hann hefir starfað í, og er mér j)að mikil
ánægja, að skilningur á starfi hans er ágætur, og hafa nú svo
margir prestar óskað hans til safnaða sinna, að erfitt mun að
uppfylla allar þær óskir næstu árin, nema nýir starfskraftar á
sviði söngsins bætist við. Veit ég, að það starf er upphaf nýrra
tíma á sviði kirkjulegrar sönglistar í söfnuðum landsins, og a'ð
víða muni rætast sú ósk mín og von í sambandi við starf söng-
málastjóra, að örvist kirkjusóknin í landi voru.
Kirkjuráð hélt nokkra fundi á árinu og liafði til meðferðar
fjölda þeirra mála, er kristni landsins varða. Á vegum kirkju-
ráðsins hafa tveir af prestum landsins undirbúning að kenslu-
bókum í kristnum fræðum. Séra Sigurjón Guðjónsson í Saur-
bæ að Biblíusögum fyrir yngstu nemendurna og séra Sveinn
Víkingur fyrir eldri nemendur. Hefir kirkjuráðið ákveðið að
styrkja séra Sigurjón til starfsins fjárhagslega og tók j)átl í
ferðakostnaði séra Sveins Víkings á sl. vetri, er hann vann hér
að handriti sínu um skeið. Er j)ess að vænta, að verlí þeiria
lakist vel, og líklegt, að bækur þeirra komi út áður en langt
líður.
Kirkjuráð kostaði nóvemberútgáfu Kirkjuritsins síðastliðið ár,
þar sem flutt voru erindi og ávörp frá hinum almenna kirkju-
fundi, er haldinn var í október f. á., auk margs annars er frain
fór á þessurn fundi, sem án efa var mjög til áhrifa fyrir kirkju-
Iegt líf og starf í landinu.
Af lögum, sem kirkjuna og þjóna hennar varða sérstaklega
og saniþykt voru á síðasta Alþingi, vil ég fyrst og fremst nefna
lög um breyting á lögum nr. 54, 27. júní 1921 um sölu á presl-
mötu.
Þá grein þessara laga, sem mestu skiftir fyrir kirkjuna, 4. gr.,