Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 56

Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 56
230 Prestastefnan. Júní-Júli. aukinnar dýrtíðar, og launakjör þeirra injög bágborin og alls ekki sambærileg við kjör annara háskólalærðra embættismanna rikisins, svo sem lækna og sýslumanna, enda hafa báðar þessar stéttir nú þegar fengið allríflegar launabætur. Engin sérstök ályktun var gjörð í málinu, en biskupi og stjórn Prestafélags íslands falið málið til frekari aðgerða og fyrirgreiðslu. 10. Prestssetur landsins. Séra Pétur Magnússon prestur í Valla- nesi hóf máls á'því, að þegar hefði verið gengið óhæfilega langt í því að skerða ýms prestssetur landsins og skifta þeim sundur í smábýli. Lagði hann til, að samin yrðu hið bráðasta lög, er hindruðu eða bönnuðu með öllu slíka skerðingu prestssetranna, hlunninda þeirra eða ítaka framvegis. Margir tóku til máls, en að lokum var samþykt að vísa tillögu málshefjanda til Kirkjuráðs. Ýmisle t Meðal gesta, er heimsóttu prestastefnuna, voru 6 amerískir prestar. Sá, er orð hafði fyrir þeim, flutti ávarp á ensku, er afhent var í islenzkri þýðingu. Á- varpið var á þessa leið: „Háæruverðugi biskup, Sigurgeir Sigurðsson, og meðlimir Synodu íslands — mætti mér leyfast fyrir hönd hershöfð- ingja míns, Major General Charles H. Bonesteel, og presla hans í her Bandaríkjanna, að bera yður, virðulega sam- koma, vorar einlægustu kveðjur og árnaðaróskir um gæfu- ríkt starf fyrir köllun yðar. Bandaríkjaþjóðin er stolt yfir trúarstarfi sínu, sem hún að nokkuru liefir hlotið fyrir brautryðjendastarf íslenzku þjóð- arinnar, en með henni liafa mótast hugsjónir slíkar sem frelsi, réttlæti og miskunnsemi, liin liáleitu markmið krist- inna þjóða um víða veröld. Hugðarefni vor, vonir og bænir eru sprotnar af hinu sama kristna þeli, og ásamt yður munum vér glaðir fagna þeim degi, er friður og góðsemd drotnar á ný yfir hjörtunum og handleiðsla hins mikla læri- föður tengir oss í eitt bræðralag. Megi ráðstefna yðar bera góðan ávöxt og stuðla að því, að kristin trú og hugsjónir falli öllum í slcaut. Verið þess vissir, að dvöl vor hér, sem hefir leyst yður undan óþæg- indum alheimsstyrjaldar, er í því einu skyni, að friður og hamingja megi senn á ný rikja um allan heim“. Biskupinn þakkaði hið virðulega ávarp, og bað prestana að flytja beztu kveðjur og árnaðaróskir hershöfðingja sínum, stéttar- bræðrum og félögum, og árnaði þjóð þeirra og kirkju allra heilla og blessunar Guðs í nútíð og framtið. Þar sem siðari fundardag prestastefnunnar bar upp á 19.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.