Kirkjuritið - 01.06.1942, Qupperneq 64
238
J. H.: Á kristniboðsakrinum.
Júní-Júlí.
Ekki þurfti að reka neinn burt fyrir það. Fullorðnu
blindu mennirnir vefa sárabindi, handldæði og-fataefni.
Þetta er svo selt. Vörurnar þykja mjög góðar. Ivínverski
herinn notar þær allmikið. — Starfið g'af af sér svo mik-
inn ágóða, að hægt var að byggja verkstæði til að þreskja
hrísgrjón og veita öðrum blindum mönnum atvinnu við
það. Skóladeild litlu dreng'janna lieldur áfram. Kín-
verskir embættismenn liafa komið í lieimsókn og fallið
í stafi af undrun yfir að sjá blinda menn vefa og' vinna
sér þannig fyrir mat, fatnaði og kaupi, og meira að segja
veila öðrum vinnu, kosta blinda pilta til náms, framleiða
vörur banda hernum og sjúkrahúsímum. — Hinir blindu
eru nýtir menn, glaðir, iðnir og þrautseigir kristnir
menn. Einn þeirra er organisti í kirkjunni hér.
Enskur læknir, sem ég' hitti, sagði í samsæti, sem hon-
um var haldið í „The Bisliop’s House“ í Ilong Kong, að
Blindraskóla vorum væri prýðilega stjórnað. Það er salt;
því að Guð á marga lifandi trúáða menn i hinni norsku
kirkju. Þeir liafa sent einn af sínum mikilhæfustu og
l)estu sonum hingað; liann vinnur verk sitt af miklum
dugnaði og mikilli trú. Jóhann Hannesson,
Taohwalun, Yivang IJunan. Cliina.
Akranesmót.
Fjögur undanfarin sumur hafa verið haldin kristileg mót a'ð
Hraungerði, þar sem trúaðir menn liafa komið saman, liafa
safnast til fagnaðar saman um sannleikans gleðiboðskap dýra,
svo að notuð séu orð úr einum af hinum fögru söngvum, sem
mikið hafa verið sungnir á þessum mótum. Þessi Hraungerðis-
mót liafa veitt trúuðum mönnum styrk og mikla gleði í trú sinni
á frelsara sinn, Jesúm Krist. En í sumar reyndist ekki unt að
halda mót að Hraungerði, sökum þess, að ómögulegt var að fá
næg farartæki þangað fyrir svo fjölmennan hóp, sem þessi mót
sækja. Það ráð var þvi tekið að halda mótið á Akranesi að þessu
sinni og fór það fram dagana 20.—22. júní. Töluverður undir-