Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 73

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 73
Kirkjuritið. Faðirinn stendnr við stýrið. 247 Jjessa öruggu trú, hvað sem á dynur. Því að þá er ég viss um, að þið verðið öll skylduræknir og góðir hásetar og að skútuna ykkar ber að lífsins landi. Og því skuluð þið horfa fram og horfa hátt, hress og glöð í bragöi. í bópi ykkar eru mörg góð mannsefni, bæði konur og karlar. Notið, vinir, vorsins stundir, verjið tíma og kröftum rétt. Látið ekki glasaglauminn og grá- lynda tízku ná tckum á ykkur. Fylkið liði gegn áfengis- og tóbaksnautninni, sem er að mergsjúga allt of marga æskumenn og konur. Sláist í hóp þess æskulýðs, sem starfar undir merkj- um Góðtemplarareglunnar eða Skátareglunnar hér í bænum, og gefið hollum íþróttaiðkunum og útilífi tómstundir ykkar. Og gleymið ekki kirkjunni. Það er jmoskagjafi. Það er drengileg viðleitni til þess að verða fullgiidir hásetar á skútunni, vaskir og góðir þegnar konungsins mikla,- sem við stýrið stendur. Hafið svo hjartans jíakkir fyrir öll samveruárin. Guð blessi ykkur öll. Snorri Sigfússon. Fréttir. Prestahugvekjurnar. Skv. ályktun aðalfundar Prestafélagsins eru þeir séra Friðrik •I. Rafnar vígslubiskup og séra Óskar J. Þorláksson að athuga möguleika á útgáfu Prestahugveknanna á Akureyri. Eru allar líkur til þess, að þær verði prentaðar þar. Þeir prestar, sem eiga tftir að senda hugvekju, geta enn komið þeim í tæka tið til séra Árna Sigurðssonar eða Ásmundar Guðmundssonar. Biskupsvisitazía. Sigurgeir Sigurðsson biskup hóf yfirreið um Snæfellsnes- prófastsdæmi um miðjan júlímánuð. Verður sagt nánar frá henni í næsta hefti. Stud. theol. Robert Jack hefir verið falin nú í sumar nokkur prestsþjónusta í Staðarhóls- þingum. Eiríkur Jón ísfeld cand. thsol. hefir verið settur prestur frá 1. júlí í Rafnseyrarprestakalli í Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi. Jens Benediktsson cand. theol. hefir verið settur prestur frá 1. júlí í Miðgarðaprestakalh i Grimsey.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.