Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 76

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 76
250 Sigtryggur Guðlaugsson: Júní-Júli. því, að sá kennari, sem sint hefir þessu efni við Háskólann síðustu árin, hefir einlægan vilja á umbótum, og enginn efast um hæfileika hans til þeirra. Vildi ég lika, að þessar linur mættu á sinn hátt styðja að umbótaviðleitni lians. Það, sem ég tel hér mest til vanza, er, að söngleg mentun hefir um langt skeið verið afskift í skólum hinna æðri menta vorra, og því verið lítið sint, nema af einstökum söngelskum nemendum og þá jafnvel utan skóla. Eg vík nú sérstaklega að undirbúningsnámi presta. Þegar ég þekti bezt til, þá var sönglegu námi (tóni, um annað ekki rætt) ætluð ein klukkustund á viku í starfsskrá skólans. Hér skal eigi rætt, hvernig þá fór um jsær einstöku vikustundir; menn vita, að lítið þarf til þess að fækka þeim til muna. Nú er mér ekki ljóst, livorl stundaskráin í Guðfræðideild Háskól- ans hefir nokkurar ákveðnar stundir til sönglegs náms, en það er mér ljóst, að ein stund á viku er mjög lítill tími tií liæfi- legrar kynningar og æfingar þeirri grein, sem hefir mátt sin svo mikils i guðsdýrkuninni um margar aldir. Og einkum verður þetta sagt, þegar titið er til þess, hve stúdentsprófið gefur litla tryggingu fyrir nokkurum undirbúningi. Tíminn er svo ónógur, að mig nærri furðar, að nokkur skuli fást tit að sinna þessari kenslu, svo vonlitil um góðan árangur, sem hún hlýtur að vera. Ef til vill sýnist sumum, að hér ræði um svo lítið atriði nú orðið — að tónlesa nokkurar setningar — að eigi sé verjandi dýrmætum tíma til þess, svo að nokkurú nemi. „Lítið má lag- lega fara“, en hér er ekki um svo lítið að ræða, eins og sýnt er hér að framan. Þótt reynt hafi verið að gera tón presta sem allra einfaldast, og það svo mjög, að það llefir tapað af fornri tign sinni, þá munu nokkurir ])restar, sem t. d. eigi hafa enn átt við Messusöngva prófessors Sigfúsar Einarssonar. Sumt, sem verður að koma til greina, jafnvel í undirbúningi tóns, er eigi hægt að tala um, svo að notist alveg ósöngfróðum nemendum. Prestur þarf að geta lesið nótur, þ. e. sungið eftir þeim, vitað grein á tóntegundum og geta fundið „anda“ hverrar þeirra, þekkja grundvöll samhljóma o. fl. Hann þarf að æfa að stilla rödd sinni í hóf og liaga sönglegum framburði eftir efni eigi siður en lestri —■ og hvar á að nema staðar í ])essari dýrmætu Guðs gjöf, sönglistinni, þegar hún á að hljóma Guði til dýrðar? Og í því á presturinn að geta verið til fyrirmyndar. — Þá er ekki óviðeigandi, að lesin sé í Guðfræðideildinni saga kirkjusöngs- ins og gefin dæmi úr honum frá ýmsum timum. Að endingu þetta: Söngkennari Guðfræðideildar þarf — til þess að nálgast verði hið sagða — að hafa tryggingu fyrir því,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.