Kirkjuritið - 01.12.1945, Blaðsíða 10
Nóv.-Des.
Sálmur.
Lag: Ó, þá náö að eiga Jesú.
Lít til hæða, lít til hæða,
lít til Guðs, hann er þér nær.
Innst í sálum allra manna
dtthvert blóm frá honum grær.
Drottins náð og Drottins friður
dulizt engum manni fær.
Lít til hæða, lít til hæða,
lít til Guðs, hann er þér nær.
Lít til hæða, lít til hæða,
lausnarinn hvar bíður þín.
Okkur vill hann öllum bjóða
upp að hástól Guðs og sín.
Heyrið ekki! Kristur kallar:
Komið hingað öll til mín!
Lít til hæða, lít til hæða,
lausnarinn hvar bíður þín.
Lít til hæða, lít til hæða,
ljúfa barn með gleði á brá.
Finnurðu ekki, að um þig líður
andinn helgi Guði frá?
Þar er hjálpin, honum treystu,
hann mun jafnan um þig sjá.
Lít til hæða, lít til hæða,
ljúfa barn með gleði á brá,
Tryggvi H. Kvaran.