Kirkjuritið - 01.12.1945, Blaðsíða 37
Kirkjuritið.
Vestur um liaf.
323
Kristján G. Kristjánsson og konu hans. Gift 7. júní 1876.
nokkuð um byggðina, en minna þó en til var ætlazt, því að við
lendum í ofsaregni með þrumum og eldingum. Er það ómetan-
lega mikils virði fyrir akrana nú, og kvartar þvi enginn, þótt
komi ofaú i hálfþurrt heyið um sláttinn. Jón Ólafsson sýnir
mér eirspjald fagurt til minningar um séra Friðrik Bergmann,
létu þau gjöra fermingarhörn hans á hálfrar aldar l'ermingar-
aimæli sínu og greypa í kirkjuvegginn. í Garðarkauptúni njót-
um við gestrisni Kristjáns kaupmanns Kristjánssonar frá Bol-
ungarvík og frúar hans. Skilst mér, að þau muni vera ein þeirra,
sem reist hafa skála sinn um þjóðbraut þvera. Kveldverð borða
ég hjá aldursforseta Mountainbyggðar, Kristjáni G. Kristjánssyni,
hálftíræðum, Skagfirðingi að ætt og uppruna, teinréttum og
höfðinglegum. Hann ræðir fyrst við mig um stjórnmál og stefnu
Jónasar frá Hriflu á valdaárum hans, sem honum þykir mikið
til koma. Hann ies Tímann að staðaldri og hefir hann við
höfðalagið á nóttunni. Féll honum þungt, er ieiðir Jónasar og
Tímans skildu, en nú mun Tíminn hafa betur í huga lians.
Eftir nokkra stund snýr hann talinu að öðru. „Nú ætla ég að
sýna þér gimsteininn minn“, segir hann og leiðir mig inn til
konu sinnar, sem lögst or i kör. Hafa þau lifað í hjóna-
bandi í meira en % aldar og eignast fjölda afkomenda. Hún er