Kirkjuritið - 01.12.1945, Blaðsíða 26
312
Ásmundur Guðmundsson:
Nóv.-Des.
Guttormsson, prestur í Minneota í Minnesota, og séra Sigur'ður
ÓJafsson.
Séra Jóns .Bjarnasonar er oft minnzt, eins og vænta niá, er
öld er liðin á þessu ári frá fæðingu hans. AðalminningarræSuna
um hann flytur séra Rúnólfur Marteinsson, náinn vinur hans
og kennari við Jóns Bjarnasonar skólann, meðan hann starfaði.
'l'il minningar um séra Jón verður gefin út á þessu ári bók með
vöidum köflum úr ritum hans og jafnframt stofnaður minn-
ingarsjóður presta til styrktar guðfræðinemum og konum þeim,
er vilja búa sig undir kristleg störf, og til útgáfu góðra bóka.
Safnast þegar á þinginu gjafir í sjóðinn.
Vegna afmælisins hlýtur kirkjuþingið heimsókn dr. Fry, yf-
irmanns lútersku kirkjufélaganna i Ameríku, er flytur erindi
og prédikar. Hann er athafnamaður mikill og prýðilega máli
farinn. Hann leggur megináherzlu á einingu kirkjunnar, lii
þess að liún bregðist ekki lilutverki sínu á næstu árum. Undir
því sé framtíðarhagur mannkynsins kominn. Uppskeran er
mikii, en verkamennirnir fáir. Nú er einStætt tækifæri til út-
breiðslu kristninni t. d. i Kína. Helmingur ieiðtoga þjóðarinn-
ar er kristinn, en aðeins einn af hundraði hinna. Hefir verið
beðið um 100000 kristniboða þangað að stríðinu loknu. Hann
varar við halri til Japansmanna og spyr: Hvað liafa þeir gjört
til að bæta siðgæði þeirra, er nú dæma þá harðast?
Kvöldsamkomur eru haldnar þingdagana, þannig að skiptist
á söngur og hljóðfærasláttur og ræðuhöld. Pétur Sigurgeirsson
talar þar prýðilega á ensku. Hann hefir lokið viðbótarprófi i
guðfræði við prestaskólann í Filadelphiu, en ferðast nú í sum-
arleyfi sínu nokkuð um íslendingabyggðir og kemur alstaðar
fram sér og landi sinu til sóma.
Aðaihátíðarsamkoman er haldin á Jónsmessu, sunnudags-
kvöld, og stýrir séra Valdimar Eylands henni vel og röggsam-
lega. Séra Valdimar er einn af höfuðklerkum vestur-íslenzkrar
kristni og vel pennafær. Hefir hann nýlokið samningu allmikils
rits um lúterska menn í Kanada, og mun Kirkjufélagið gefa út.
Hann er varaforseti Þjóðræknisfétagsins. Hann minnist í ræðu
séra FYiðriks .Bergmanns og hvern meginþátt hann átti í því,
að kirkjan var reist, sem við erum i, og annara starfa hans. I
kirkjúnni er eirmynd af dr. Jóni Bjarnasyni og máluð ínynd af
dr. Birni Jónssyni. Fyndist mér vel fallið, að þar kæmi einnig
mynd af séra Friðriki. Mikill mannfjöldi er nú samankominn í
kirkjunni, mun hún taka um 700 manns. Ég minnist starfa
Kirkjufélagsins og forseta þess, einkuin séra Jóns Bjarnasonar,