Kirkjuritið - 01.12.1945, Blaðsíða 54
Nóv.-Des.
Séra Friðrik Friðriksson.
Séra Friðrik Friðriksson er
nú kominn heim frá Dan-
mörku eftir margra ára burt-
veru. Hefir hann ritað þar œfi-
sögu sína, flutt erindi og pré-
dikað og gerzt leiðtogi ungra
manna, sem hafa náð að kynn-
ast honum. Mun hann einna
nafnkunnastur f^lendinga,
þeirra sem nú eru uppi, • og
minnast margir hans, er þeir
heyra góðs manns getið. Við
höfum mjög má'tt sakna hans
þessi ár, og vonum við nú, að
ástúð hans tii allra, bæði
skoðunarbræðra og annarra,
megi méta sem mest þann fé-
lagsskap, er hann hefir stofn-
að hér á landi innan vebanda
þjóðkirkjunnar. Veit ég engan
líklegri en hann til þess að geta flutt með heilögum krafti ræðu
Jóhannesar safnaðaröldungs frá Efesus: Börn mín, elskið hvert
annað. Við fögnum því að hafa fengið hann til okkar fyrir jólin
og bjóðum hann velkominn af öllu hjarta.
Á. G.
Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup
befir verið skipaður dómpröfastur í Reykjavíkurprófastsdæmi.
Séra Björn Magnússon prófastur
hefir nú fengið veitingu fyrir dósentsembættinu i guðfræðideild
Háskólans frá 1. okt. síðastl. að lelja, enda hóf hann þá þegar
kcnnslu sína.
Sigurður Birkis söngmálastjóri
er nýkominn heim úr ferðalagi sinu um landið til að stofna o
æfa kirkjukóra. Hefir honum orðið mikið ágengt sem fyr, o
á skilið alþjóðar lof fyrir starf sitt.
Prestsvígsla.
Lárus Halldórsson cand. theol. var vigður prestur til Flat-
eyjarprestakalls í Barðastrandarprófastsdæmi, sunnudaginn 14.
okt., en veitingu fékk hann 1. okt. að lokinni prestskosningu.
to ’cc