Kirkjuritið - 01.12.1945, Qupperneq 25
Kirkjuritið.
Vestur um haf.
311
vinna á nóttunum", bœtir hann við í gamni. Varaforseti sér
ýmsum fundarmanna fyrir gististöðum. Verð ég einn þeirra,
og fæ ágætis herbergi á bezta stað í borginni.
Afmælisþingfið.
Þingið stendur fimm næstu daga, 22.—26. júní. Sitja það 60—
70 prestar og fulltrúar, úr flestum íslendingabyggðunum, nema
engir úr Vatnabyggðunuin i Saskatchewan, enda eru íslending-
ar þar prestslausir nú. Konur eru i flokki fulltrúanna.
Mér þykir mikilsvert um margt ])að, sem kirkjuþingið fjali-
ar um. Trúboð, líknarmál, sunnudagaskóla, útvarp, útgáfu blaða
og bóka og fleiri menningarmál. Þar er um fjölþætt starf að
íæða. Það er eitt einkenni á okkar tímum, hve lítið tillit menn
taka til prédikana og eggjunarorða, ef óstudd eru af fram-
kvæmdum. En boðskapur í verki er því áhrifameiri, og hann
flytur Kirkjufélagið samhliða prédikununum.
Hér er náin samvinna leikmanna og presta og engin hætta
á því, eins og sumstaðar, að kirkjíin verði talin stofnun ákveð-
inna embættismanna, prestanna, þeir séu kirkjan. Kirkjan er
lifandi samfélag, sem ætlað er að ná til allra undantekningar-
laust. Hugmyndin um prestsdóminn almenna þroskast yið þing-
siörf sem þessi.
Starfið fyrir aldraða fólkið blómgast ár frá ári, og flytur séra
Sigurður Ólafsson um ])að merkilega skýrslu. Elliheimilið Betel
að Gimli er til fyrirmyndar. Því berast miklar gjafir, einkum
dánargjafir, og er fjárhagur þess orðinn svo góður, að ])að ekki
aðeins ber sig, heldur er fært um að ieggja stórfé til stofnunar
nýrra elliheimila gegn framlögum annars staðar frá. Þannig á,
áður en langt um líður, að koma upp nýju Elliheimili í Norður-
Hakóta, og er fjársöfnun hafin í því skyni. Einnig hefir komið
•il tals með íslendingum í Vancouver að reisa þar elliheimili.
Þáttur kvenna í kirkjulegu starfi er mjög veigamikill. Starfar
kvenfélag í hverjum söfnuði, og er samband þeirra í milli. Frú
Stephensen, ekkja Ólafs læknis, segir fallega frá starfi Banda-
lagsins. Ráðstafanir hafa verið gjörðar og fé safnað til ])ess að
i’eisa sumarbúðir handa íslenzkum æsludýð við Winnipegvatn
suður af Gimli. Má vænta þess, að þaðan komi kirkjunni ágætir
liðsmenn, er stundir líða.
Hátiðaræður eru fluttar til minningar um 60 ára starf Kirkju-
félagsins og brugðið upp myndum úr sögu þess. Gjöra þeir það
séra Kristinn Ólafsson, heiðursforseti félagsins,, séra Guttormur