Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 13
Kirkjuritið.
Prestastefnan 1947
Hin árlega prestastefna var haldin í Reykja-
vik dagana 19. -20. júní. Hún hófst með guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni. Séra Björn Magnús-
son dósent þjónaði fyrir altari, en séra Eirík-
ur Eiríksson á Núpi prédikaði, og lagði út af Mk. 11.
22 - 23.
Presta-
stefnan
sett.
Að lokinn prédikun var altarisganga fyrir synodus-
presta, sem séra Björn Magnússon og séra Eiríkur
Eiríksson önnuðust.
Prestastefnan var mjög fjölsótt að þessu sinni. Þar
voru mættir auk biskups allir kennarar guðfræðideild-
ar Háskólans, vígsluhiskupar báðir, en alls voru þar
samankomnir 76 prestvígðir menn og einn guðfræði-
kandidat.
Við setningu prestastefnunnar, sem fram fór í Há-
skólakapellunni, las biskup ritningarkafla og flutti bæn.
Par aðstoðuðu dr. Páll ísólfsson og Þórhallur Árnason,
cellóleikari, með samleik á celló og orgel. — Að því
loknu var gengið til fundarstarfa.
Að þessu sinni reyndist kennslustofa guðfræðideild-
arinnar, sem oft áður liefir verið fundarstaður, ekki
nogu rúmgóð, og var þvi prestastefnan flutt til 1.
kennslustofu Háskólans, sem jafnframt er fyrirlestra-
salur. Þar flutti biskup ávarp það og gaf skýrslu þá,
sem hér fer á eftir.
Kæru starfsbræður.
Ávarp Mér hefir æfinlega verið það mikið gleði-
biskups. efni að bjóða yður velkomna á presta-
stefnu. Svo er það enn. Ég fagna því, að
Pei’ eruð hingað komnir, og reynsla liðina ára gefur