Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 39
Kirkjuritið.
Allsherjarþing
lúterskra kirkna í Lundi.
I.
Allsherjarþing lúterskra kirkjufélaga var lialdið í Lundi
30. j úní til 6. júlí, að báðum dögum meðtöldum. Vorum
við þar fulltrúar þjóðkjrkjunnar á fslandi, dr. Sigur-
geir Sigurðsson biskup og ég, en frikirkjunnar i Reykja-
vík séra Árni Sigurðsson. Auk þess voru þau gestir á
þinginu: Guðrún Pétursdóttir biskupsfrú, frú Bryndís
Þórarinsdóttir og séra Sigurður Pálsson.
Petta þing er þáttur í samvinnuhreyfingu innan kirkj-
Unnar, sem Iiófst snemma á 20. öldinni og þeir studdu
nin liríð manna bezt Charles Brent biskup í Vestur-
heimi og Nathan Söderhlom erkibiskup Svía. Vakti
einkum fyrir að efla einingu kirkjunnar i því, er lýtur
nÖ trú og skipulagi, lífi og starfi. Og hafa nokkur þing
verið haldin á fárra ára fresti i þessu skyni, nema á
stríðsárunum síðustu. Var nú þetta fyrsta allsherjar
kirkjuþing lúterskra manna eftir strið. íslendingum
var gefinn kostur á að senda þangað 5 fulltrúa, og var
það miklu hærri tala lilutfallslega en nokkurri annari
þjóð var ætluð. Mun því einkum hafa valdið, að fsland
er nú stórum kunnara þjóðum heimsins en var fyrir
aokkurum árum og alviðurkennt frjálst og fullvalda
'iki, og auk þess var þáttlaka þjóðkirkju okkar mikil
a lúterska kirkjuþinginu i Kaupmannahöfn 1929, sem
telja
má beinan undanfara þessa þings.
Pingið var mjög rækilega undirbúið, og unnu að því
yftisir kirkjuhöfðingjar og vísindamenn, svo sem Erling