Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 48
228
Ásmundur Guðmundsson:
Júlí-Okt.
velli opinberunar Jesú Krists, orða lians, anda og
fyrirmyndar, o,g að eitt liið mikilvægasta skilyrði fyrir
vexti, framför og blessunarríkum áhrifum kirkjunnar
á líf kynslóðanna sé það, að þjónar bennar breyti og
starfi í samræmi við einingarhugsjón Krists, er felst í
orðum hans: „Allir eiga þeir að vera eitt“.
Kjarni stefnuskrárinnar fyrir heimssambandið er
sem sé þessi: Bróðurlegt samstarf allra á grundvelli
fagnaðarerindis Jesú Krists. Að því á að Idúa bæði
út á við um víða veröld og inn á við með kirkju hverr-
ar þjóðar, sem í sambandinu er.
Aðalframkvæmdir sambandsins skulu faldar alls-
herjar kirkjuþingi, sérstakri framkvæmdastjórn, nefnd-
um með hverri þjóð um sig og erindrekum að eins-
stökum málum, eftir þörfum.
Kirkjuþing á að koma saman 5. hvert ár. Það hefir
æðst úrskurðarvald í málum sambandsins og kýs fram-
kvæmdastjórn þess.
Framkvæmdastjórn milli þinga skipa sexlán menn
að forseta meðtöldum. Þeir veita viðtöku skýrslum og
iiafa forystu á hendi í þeim málum, er sambandið
varða i heild. Þeir halda fundi eigi sjaldnar en einu
sinni á ári. Þeir kjósa sérstakan ritara, er annast dag-
legan rekstur í samráði við forseta.
Hver þjóð kýs sína nefnd, en stjórnin skipar erind-
reka.
Ýmislegt mátti finna að þessu frumvarpi, og var það
flestum ljóst. En þó voru litt bornar fram breytingartil-
lögur, af því að stjórnin óskaði þess, að þær kæmu
heldur síðar og samþykkt stjórnarskrár nú yrði að-
eins talin til bráðabirgða. Skyldu menn senda nýju
stjórninni eflir þingið tillögur sínar í öruggu trausti
þess, að þeim yrði vel tekið.
Við íslenzku fulltrúarnir fórum að þessum ráðum
og gengum frá skriflegri tillögu til afhendingar nýju
stjórninni. Miðaði hún að því, að enn skýrar skyldi