Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 67
Kirkjuritið.
Menntun presta á Islandi.
217
kennsla hefir fallið niður í klaustrunum, en ætla iná að
drýgstan þátt hafi þau átl í uppfræðingu klerkanna,
einkum þegar leið á 13. og 14. öld, alveg eins og þau
hafa lagt grundvöllinn að bókmenntum vorum. Þegar
siðaskipLi fóru i liönd, var í fyrstu ráðgert að stofna
skóla við klaustrin, þó úr því )^rði ekki. En þá þótti
líka hera brýna nauðsyn til, að koma föstu skipulagi á
latínuskólana á biskupsstólunum. Er þetta óbein viður-
kenning á þessu mikla hlutverki, sem klaustrin gegndu.
7. Yfirlit.
Um menntun klerka almennt í kaþólskri líð er það
auðvitað mál, að hún hefir verið harla misjöfn, eins
og gerist oggengur, hæði eftir gáfum manna og' aðstöðu
til náms, stundum verið í ágætu lagi, en stundum og
jafnvel oftar næsta lítil og bágborin. Mikils er þó um
það vert, að mikill þorri þeirra manna, sem skólum
hafa veitt forstöðu, allt frá hinum útlendu hiskupum,
sem héi' komu fyrst skipulagi á kristnihaldið, og til Ög-
mundar Pálssonar, svo og Haukdælir, Oddverjar og
ýmsir klaustra-manna, höfðu margir hverjir framað
sig mjög utanlands við margra ára nám. Þeir höfðu
úvalizt við ýmsar helztu menntastofnanir álfunnar, og
hárust þannig liingað út furðu fljótt menningárstraum-
ar frá mörgum beztu menntabólum Evrópu. Jafnvel
fi’am eftir öldum er iðulega getið um utanfarir ábóta og
hiskupa, og urðu þannig ýms liöfuðrit kaþólsku kirkj-
unnar undra fljótt kunnug hér lærðum mönnum. Má full-
vrða, að skólar Haukdæla og Oddverja ’jg skóli Jóns
oiskups Ögmundssonar hafi í engu staðið að baki mörg-
run beztu menntastofnunum erlendis á sama tíma, enda
hafa þeir verið sniðnir eftir þeim, svo sem föng voru á.-
I dómskólum og klausturskólum miðaldanna var
venjulega byrjað að kenna Davíðssálma, sem auðvitað
v°ru þá lærðir utanbókar á latínu. Síðan var tekið að
kenna lestur og skrift, og var fyrst rilað á vaxtöflu með
Kirkjuritið. ' 17