Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 86

Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 86
266 Tómstundarabb. Júlí Okt. Hann var frábœr áhugamaður um málefni kristindómsins heima og um alla jörð. Eitt af störfum lians til glæðingar trúarlífi í landinu var út- gáfa kristilegra smárita. Kom hann út 67 smáritum af dugnaði sínum, en hafði til búin til prentunar 13, er hann andaðist og iagði 1000 rikisdali fram til þess að þau kæmust á prent. Fór svo, að smárit lians urðu alls 80. Eftir það féll þetta fyrirtæki niður og allmikill sjóður, er myndazt hafði til þess að halda útgáfunni áfram, týndist eða eyddist einhvern veginn. Sýnir þessi saga, eins og svo margt annað, að veldur hver á heldur. Áhugi séra Jóns skapar ]>essi 80 rit og vænan sjóð af engu, en áhugaleysið gerir sjóð- inn að engu. Var sannarlega vel til fundið að minnast þessa merka manns á aldarafmæli brottfarar lians með því, sem honum hefði þótt vænst um: Að hefja enn þetta sama verk í anda hans, og sýna, að „frækornið“ liafi legið þarna, óvirkt að vísu, en iifandi, alla þessa stund, tilbúið að skjóta frjóöng'um þegar er áhuga- söm hönd hrærir jarðveginn og lofar sól að skína á það og verma á ný. Þannig eru „Frækorn“ af stað farin. Ólafur Ólafsson kristndboði ritar formála þessa fyrsta bindis „Frækorna“ og lýsir tildrögum og tilgangi. Hann á og mestan þátt i ritinu, eða, auk formálans, þrjú af sex smáritum, sem hér eru saman tekin í þessu bindi, en það er töluvert meira en lielmingur bókarinnar. Þá er eitt smárit (stytt) eftir séra Jón lærða, eitt rit eftir Árna Árnason og eitt rit eftri Karl Barth, þýtt af séra Sigurjóni Þ. Árnasyni. Vel fer á því að hefja útgáfu þessa með riti um séra Jón sjálf- an. Hefir Ólafur Ólafsson tekið þessa grein saman, og er hún iipurt skrifuð og nær vel yfir efnið. Verður mynd séra Jóns furðu skýr, iærdómur lians, svo að hann var jafnvel bendlaður við galdur, og var iatínan tömust til bænar, skap lians, dugnað- ur og hagsýni í búskap, en þó einkum eldlegur áhugi lians og fórnfúst starf i prestsskap og brennandi löngun að vinna fyrir Guðs ríki, heima og úti í heiðingjalöndunum. Æfi séra Jóns lærða og starf hans er merkilegt rannsóknar- efni. (Hann var langafi dr. Jóns Helgasonar biskups í föðurætt, en Tómar Sæmundsson afi í móðurætt, svo að ekki var furða

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.