Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 47
Kirkjuritið. Allsherjarþing lút. kirkna í Lundi. 227
þá taka meira tillit til ýniissa breytinga með kirkju-
félögum, er kynnu að verða milli þinga.
Höfuðgrein stjórnarskrárinnar var um eðli og til-
gang sambandsins og hljóðar liún á þessa leið:
L Lúterska heimssambandið er frjálst bandalag hít-
erskra kirkna. Það hefir ekkert lögjafarvald né áhrifa-
vald á fullt sjálfsforæði kirkna þeirra, sem teljast til
þess, en fer í umboði þeirra með þau mál, sem þær
fela þeim.
2. Tilgangur Lúterska heimssambandsins er sá:
n) Að bera samhljóða vitni fyrir heiminum um
fagnaðarerindi Jesú Krists sem krafl Guðs til hjálp-
ræðis.
b) Að stuðla að einingu trúar og játningar með lút-
erskum kirkjum í heiminum.
e) Að efla bróðurlega samvinnu lúterskra manna
Qð því að auka þekkingu sína.
d) Að koma til leiðar samstilltum stuðningi lúterskra
manna við einingarhreyfingar kristninnar og samstarf
að uppeldi og kristniboði.
e) Að styðja lúterska söfnuði, er þarfnast andlegrar
eða fjárhagslegrar hjálpar.
3. Lúterska heimssambandið tekur til meðferðar mál,
er kirkjufélög innan þess kunna að fela því, eitt eða
fleiri.
Þessi starfskrá virtist okkur Islendingunum góð, liöf-
uðáherzla lögð á kristilegt starf og samhljóðan við til-
lögu biskups okkar, sem nálega allir liöfðu samþykkt
a Pi'estastefnu fyrir nokkrum dögum. En sú samþykkt
v&r sem liér segir:
»Prestastefna íslands 1947 brýnir alvarlega fyrir
éllum þeim, sem kirkju og kristindómi unna, að láta
ekki trúmálaágreining eða trúmálastefnur liindra frið-
samlagt, jákvœtt starf í kristindóms- og kirkjumálum.
Lítur prestastefnan svo á, að fullkomið liugsana og
skoðanafrelsi eigi að rikja í kirkju Islands, á grund-