Kirkjuritið - 01.07.1947, Blaðsíða 52
232
Á- G.: Allsherjaþingið í Lundi.
Júli-Okt.
VIII.
Gildi Lundarþingsins verður vonandi mikið.
Það er þegar nokkurs virði, að ekki dróst lengur að
koma því á eftir stríðið og lialda þannig áfram ein-
ingarhreyfingunni innan kirkjunnar. Og meiri festa
hlýtur að verða í starfinu fyrir það, að bandalag er
stofnað, og má telja eðlilega þróun. Kirkju íslands
ætti að vera styrkur að því, að samvinnuhiigur hennar
eflist hæði inn á við og út á við. Hún hefir með inn-
göngunni í Sambandið valið sér sálufélag við þær
þjóðir og þau kirkjufélög, sem henni eru skyldust og
vilja miða líf og starf við fagnaðarerindi Krists og
samvizkufrelsi kristins manns, svo sem Lúther gjörði.
Það að fulltrúar dreifðra þjóða um allar álfur heims
kynnast og deila geði hverir við aðra eykur ennfrem-
ur vináttu og bræðralag í milli og dýpkar skilning
þeirra á eðli kristindómsins, að mennirnir beri byrðar
liverir annarra.
En þetta skyldi aðeins upphaf einingarstarfsins.
Lundarþin,gið á að vera einskonar aðdragandi að
öðru miklu stærra allsherjar þingi á Hollandi næsta
ár fyrir allar kirkjudeildir heims, er vilja eiga hlut
að. Þar á þáttur Lúterska heimssambandsins að vera
mikill. Það verður að hera einingarmarkið djarflega
á komandi árum, flytja af eldmóði hoðskapinn hverj-
um, sem eyru liefir að lieyra: Kristnir menn um víða
veröld, sameinizt. Sameinizt gegn stríði og helstefnu.
Fórnið öllu, sem krafizt verður, fyrir sigur friðar og
kærleika, jafnvel lífinu sjálfu. Rís hátt á ný, kirkja
píslarvættisins.
Ásmundur Guðmundsson
KIRKJULEGT ALÞJÓÐARÁÐ.
Ákveðið hefir verið, að stofna skuli alþjóðakirkjuráð á
kirkjuþingi í Amsterdam á næsta sumri. Er þess vænzt, að
helztu kirkjufélög kristninnar muni standa að því, að kaþólsku
kirkjunni einni undanskilinni.